Lesa meira

Lokamót Grand Prix mótaraðar í borðtennis

12.4.2009
Grand prix meistarar keppnistímabilsins 2008-2009 urðu í meistaraflokki karla Guðmundur E.
Stephensen Víkingi og í meistaraflokki kvenna Guðrún G Björnsdóttir KR.
 
Undanúrslit:
Í meistaraflokki karla léku í undanúrslitum  Guðmundur E. Stephensen Víkingi gegn Magnúsi K. Magnússyni Víkingi  og fóru leikar þannig að Guðmundur sigraði örugglega 4 - 0.  Í hinum undanúrslitaleiknum lék Sigurður Jónsson Víkingi gegn Mihaita Barbascu HK þar sem Sigurður  sigraði í hörkuleik  4 - 3.
 
Í meistaraflokki kvenna léku í undanúrslitum Magnea Ólafs Víkingi gegn Sunnu Jónsdóttur ÍFR, þar sem Magnea sigraði örruglega 4 - 0.  Í hinum undanúrslitaleiknum í meistaraflokki kvenna léku Fríður Rún Sigurðardóttir KR gegn Guðrúnu G Björnsdóttur, þar sem Guðrún sigraði 4 - 1.
 
Úrslit:
Í Meistaraflokki karla léku því til úrslita Guðmundur E. Stephensen Víkingi gegn Sigurði Jónssyni Víkingi þar sem  Guðmundur sigraði örugglega  4 - 0
( 1. lota:11- 3, 2. lota: 11- 6, 3. lota:11 - 2,  4. lota:11 - 2).
 
Í Meistaraflokki kvenna léku til úrslita Guðrún G Björnsdóttir KR  gegn Magneu J. Ólafs Víkingi.  Leikar fóru þannig að Guðrún sigraði 4 - 2 eftir spennandi viðureignir (1. lota: 11 - 7,
2. lota: 11 - 4,   3. lota: 11 - 9, 4. lota: 9 - 11,  5. lota: 7 -11 og 5. lota: 12 - 10).
 
Úrslit voru eftirarandi:
MFL karla:
1.     Guðmundur E. Stephensen  Víkingur
2.     Sigurður Jónsson  Víkingur
3-4.  Mihaita Barbascu HK
3-4.  Magnús K. Magnússon  Víkingur
 
MFL kvenna:
1.    Guðrún G Björnsdóttir  KR
2.    Magnea Ólafs  Víkingur 
3-4.  Sunna Jónsdóttir  ÍFR
3-4.  Fríður R. Sigurðardóttir  KR