Íslandsmótið í borðtennis 2010
7.3.2010
Íslandsmótið í borðtennis fór fram í TBR Íþróttahúsinu 6 – 7mars 2010.
Keppendur voru 98 og komu frá félögunum Víkingi, HK, KR, Fjölnir, Erninum, Dímon, ÍFR, Nes og Akri.
Sigurvegari mótsins var Guðmundur E. Stephensen Víkingi sem sigraði þrefallt í einliðaleik karla, tvíliðaleik karla og tvenndarkeppni.
Í Meistaraflokki karla sigraði Guðmundur E. Stephensen Víkingi og varð þar með Íslandsmeistari í einliðaleik sautjánda árið í röð.
Guðmundur lék úrslitaleikinn gegn félaga sínum úr Víkingi Magnúsi K. Magnússyni og sigrað 4 - 0 ( 11 - 4, 11 - 5, 11 – 3 og 11 - 9).
Í Meistaraflokki kvenna lék Lilja Rós Jóhannesdóttir Víkingi úrsliateikinn gegn Guðrúnu Björnsdóttur KR
þar sem Lilja sigraði 4 - 0 (11 - 9, 11 - 8, 11 - 6, 12 – 10)
Í Tvíliðaleik karla sigruðu Guðmundur E. Stephensen og Magnús K. Magnússon Víkingi
Í Tvíliðaleik kvenna sigruðu Lilja Rós Jóhannesdóttir og Eva Jósteindóttir Víkingi
Í Tvenndarkeppni sigruðu Guðmundur E. Stephensen og Eva Jósteinsdóttir Víkingi
Úrslit í Meistaraflokkunum á Íslandsmótinu voru eftirfarandi:
Meistaraflokkur karla: 1. Guðmundur E. Stephensen Víkingur
2. Magnús K. Magnússon Víkingur
3-4. Sigurður Jónsson Víkingur
3-4. Magnús F. Magnússon Víkingur
Meistaraflokkur kvenna: 1. Lilja Rós Jóhannesdóttir Víkingur
2. Guðrún Björnsdóttir KR
3-4. Eva Jósteinsdóttir Víkingur
3-4. Bergrún L. Björgvinsdóttir Dímon
Tvenndarkeppni: 1. Guðmundur E. Stephensen/Eva Jósteinsdóttir Víkingur
2. Sigurður Jónsson/Lilja Rós Jóhannesdóttir Víkingur
3-4. Kjartan Briem/Ragnhildur Sigurðardóttir KR/Víkingur
3-4. Magnús K. Magnússon/Magnea Ólafs Víkingur
Tvíliðaleikur karla: 1. Guðmundur E. Stephensen/Magnús K. Magnússon Víkingur
2. Magnús F. Magnússon/Ingólfur Ingólfsson Víkingur/KR
3-4. Kári Mímisson/Davíð Jónsson KR
3-4. Sigurður Jónsson/Daði Freyr Guðmundsson Víkingur
Tvíliðaleikur kvenna: 1. Eva Jósteinsdóttir/Lilja Rós Jóhannesdóttir Víkingur
2. Ragnhildur Sigurðardóttir/Guðrún Brjörnsdóttir Víkingur/KR
3-4. Magnea Ólafs/Bergrún Björgvinsdóttir Víkingur/Dímon
3-4. Hólmfríður Snorradóttir/Hrefna Finnsdóttir HK










