Víkingarnir Magnea og Eyrún sigurvegarar Íslandsmóts unglinga
22.3.2010
Víkingarnir Magnea J. Ólafs og Eyrún Elíasdóttir
sigruðu þrefalt á Íslandsmóti unglinga 2010 sem fram fór í Íþróttahúsi
Kennaraháskólans 20.-21. mars, í einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndarkeppni.
Magnea J. Ólafs sigraði í einliðaleik í flokki 19-21
árs stúlkna, í tvíliðaleik stúlkna 19-21 árs með Eyrún Elíadóttur og í
tvenndarkeppni undir 21 árs með Davíð Teitssyni Víkingi. Magnea sigraði
jafnframt í liðakeppni stúlkna undir 21 árs sem fram fór í febrúar og sigraði
því fjórfalt á Íslandsmótum unglinga 2010.
Davíð Teitsson Víkingi, auk þess að verða
Íslandsmeistari í tvenndarkeppni með Magneu, varð jafnframt í öðru sæti í
einliðaleik og tvíliðaleik í flokki 19-21 árs eftir tvísýna leiki.
Eyrún, auk þess að sigra í tvíliðaleik með
Magneu, sigraði í einliðaleik í flokki 16-18 ára stúlkna og í
tvenndarkeppni 16-18 ára með Sindra Þór Sigurðssyni Víkingi. Athyglisverður
árangur hjá henni og þau Sindri og Eyrún, sem bæði eru í 2. flokki, ruddu meðal
annars úr vegi pari með meistaraflokksleiksmanni úr KR í leið sinni að
titlinum í tvenndarkeppninni.
Sindri sýndi að hann er í mikilli framför, sigraði í
tvenndarkeppni 16-18 ára, og varð í öðru sæti í einliðaleik og í tvíliðaleik
náðu hann og Daníel Bergmann Ásmundsson félagi hans úr Víkingi öðru sæti.
Þeir Sindri og Daníel töpuðu í úrslitum tvíliðaleiks fyrir blönduðu liði
Víkings og KR þar sem Víkingurinn Markús Brekke Þorfinnsson lék með Jóhannesi
Tómassyni. Markús stóð sig vel og varð jafnframt í 3.-4. sæti í einliðaleik
16-18 ára en hann kom gagngert frá Noregi til að taka þátt í mótinu.
Í flokki 12-13 ára drengja stóð Logi Ágústsson Víkingi
sig ákaflega vel. Hann sigraði í tvíliðaleik með Jóhanni Hrafni Sigurjónssyni
Víkingi og varð í öðru sæti í einliðaleik eftir jafnan úrslitaleik við
Pétur Andrésson HK.








