Lesa meira

Víkingur boðar til stefnufundar

3.9.2010
Knattspyrnufélagið Víkingur boðar til stefnufundar laugardaginn 25. september. Áætlað er að fundurinn standi milli kl. 10-16. Allir áhugasamir Víkingar eru hvattir til að skrá sig á netfangið harhar@vikingur.is fyrir 23. september n.k.




Tilgangur:

·         Fá innblástur í starfssemina frá félagsmönnum og þeim er láta sig starf félagsins varða.

·         Skerpa á því hugarfari sem þarf til að reka íþróttafélag með fjölbreytta starfssemi sem sniðin er að þörfum og áhuga iðkenda.  Móta sameiginlega sýn og skapa stefnu til lengri tíma. 

·         Auka gagnkvæman skilning, virðingu og traust meðal þátttakenda sem koma úr ólíkum einingum.  Styrkja sameiginlegan Víkingsanda

·         Virkja mismunandi sjónarmið og bakgrunn til þess að nýta það besta og mynda sterkari grunn undir starfssemi félagsins.

 

Framkvæmd:

·         Fundurinn er á vegum Víkings og skipulagður á forsendum félagsmanna.

·         Þátttakendur koma frá öllum einingum og baklandi félagsins, hver með sinn bakgrunn en allir með þann tilgang að vinna félagi sínu til heilla.

·         Fundur fer fram með þankahríð og samræðum eftir skipulagi sem gefur hverjum þátttakanda tækifæri til að koma sínum hugmyndum á framfæri.

 

Markmið:

·         Sameina lykilaðila í félagsstarfi Víkings um gildi og framtíðarsýn félagsins

·         Skapa áþreifanlegt umhverfi sem mótast af skipulagi og ferlum.

·         Mynda sameign og samábyrgð félagsmanna á framtíðarárangri Víkings í heild.