Foreldratorg
Foreldratorgið er vettvangur þar sem foreldrar og forráðamenn iðkenda í Víkingi geta nálgast á einum stað ýmsar upplýsingar sem varða þá sérstaklega.  Til að byrja með opnum við gáttir að æfingatímum, æfingagjöldum og Fríkorti Reykjavíkurborgar. Þá er hér að finna stefnu Víkings varðandi misrétti og fordóma.

Fleira mun safnast í þennan sarp þegar fram líða stundir og kemur ýmislegt til greina. Foreldratorgið á sér ekki fordæmi, svo við vitum. Þess vegna ýtum við því úr vör og þroskum það í samræmi við áhuga og ábendingar, brjóstvit og reynslu.


  • Gagnlegar og góðar vangaveltur fyrir foreldra er að finna í bæklingi KSÍ sem liggur frammi í Víkinni. Ástæða er til að benda öllum foreldrum að taka með sér eintak heim og lesa. Textinn er vissulega sniðinn við reynsluheim knattspyrnuiðkenda, foreldra þeirra og forráðamenn en innihaldið á tvímælalaust erindi við foreldra allra iðkenda íþrótta, hvaða nafni sem nefnast.
  • Smellið á hnappinn KSí-bæklingur til vinstri og lesið!


Allir á skíði

Nú styttist í páskahelgina. Þar sem aðstæður eru góðar í Bláfjöllum, ætlar skíðadeildin að vera með skemmtilega dagskrá þessa daga. Meðal annars verður páskaeggjamót og frí kennsla fyrir hressa Víkinga. Nánari dagskrá þegar nær dregur.

Kv.

Skíðadeildin.

Mikið fjör í íþróttaskólabarnanna í vetur og skráning hafin á nýtt námskeið

Mikið fjör í íþróttaskólabaranna í vetur og skráning hafin á nýtt námskeið.

Íþróttaskóli barnanna hjá Víking byrjaði námskeið í Réttaholtsskóla í haust sem fyrr. Kennarar i vetur, eru Anna K. Gunnlaugsdóttir íþróttarkennari og Berglind Bjarnadóttir.

Lesa frétt »

Nýtt námskeið að hefjast í íþróttaskóla barnanna

 

Nýtt námskeið hefst laugardaginn 10. janúar. Hægt er að nálgast skráningarblað hér að neðan. Á vegum Knattspyrnufélagsins Víkings er starfræktur Íþróttaskóli barnanna sem ætlaður er börnum á aldrinum 3-6 ára.

Lesa frétt »

Þrír Víkingar í U17- landsliðsúrtaki

Svavar Cesar Hjaltested, Sigurður Egill Lárusson og Tómas Guðmundsson hafa verið valdir til að taka þátt í úrtaksæfingum vegna U17-liðs karla sem æfir um helgina. Þessir drengir hafa staðið sig frábærlega í sumar með 3. flokki karla.