Upplýsingar um tryggingar íþróttamanna/iðkenda.
Almenna reglan er sú að íþróttamenn Víkings eru fyrst og fremst á eigin ábyrgð eða á ábyrgð foreldra þeirra iðkenda sem eru yngri en 16 ára.
Félagið sér ekki um að tryggja íþróttamenn Víkings sérstaklega.
Víkingur hvetur iðkendur og fjölskyldur þeirra að kynna sér ákvæði almannatrygginga og tryggingafélaga til að tryggja sig gagnvart slysum í íþróttum.
Hér fylgja reglur ÍSÍ og ÍBR um greiðslur vegna slysa sem hljótast af íþóttaiðkunn.
Reglugerð ÍSÍ um greiðslu bóta vegna íþróttaslysa
1. grein
Slysatrygging íþróttafólks ÍSÍ tekur til slysa, sem verða við íþróttaiðkanir þeirra, sem orðnir eru 16 ára og eru sannanlega félagar í viðurkenndum íþrótta- og ungmennafélögum og sem ekki njóta bóta, skv. 3. mgr. 24.gr. almannatryggingalaga.
Þó eiga þeir íþróttaiðkendur rétt á bótum sem eru yngri en 16 ára og sem stunda æfingar og keppni í efsta aldursflokki sinnar íþróttagreinar.
Þeir íþróttaiðkendur, sem hafa atvinnu af íþróttaiðkun sinni sbr. reglugerð heilbrigðis- og tryggingaráðuneytis dags. 22. mars 2002, fá ekki bætur skv. reglugerð þessari, enda eru þeim tryggðar bætur hjá TR.
Þeir íþróttaiðkendur, sem eru óvinnufærir í 10 daga eða meira fá ekki bætur skv.reglugerð þessari, enda eru þeim tryggðar bætur hjá TR sbr. reglugerð heilbrigðis- og tryggingaráðuneytis dags. 22. mars 2002.
2. grein
Með íþróttaiðkun er átt við keppni á vegum íþróttafélaga skv. 1. gr. svo og
skipulagðar íþróttaæfingar sem haldnar eru á vegum þessara aðila, undir stjórn þjálfara með það að markmiði að taka þátt í keppni. ÍSÍ áskilur sér rétt til að hafna erindum, vegna íþróttaslysa, sem eiga sér stað í æfingum og keppni sem eru fyrir 30 ára og eldri.
3. grein
Slys sem verða á ferðum til eða frá æfingum eða keppni falla ekki undir
slysatryggingar íþróttafólks skv. reglugerð þessari. Það sama gildir um slys í
búningsherbergjum og baðklefum og slys á keppnisferðalögum, innanlands sem utanlands, nema þau sem verða við æfingar eða keppni, sbr. 2. gr.
ÍSÍ endurgreiðir ekki kostnað vegna kaupa á lyfjum, tannviðgerðir,
sjúkraflutningakostnað, stoðtæki og kostnað vegna sjúkraþjálfunarbeiðni.
4. grein
Tilkynningu um íþróttaslys skal senda skrifstofu ÍSÍ á eyðublaði sem liggur frammi á skrifstofu ÍSÍ og einnig má ná í á heimasíðu ÍSÍ, www.isisport.is. Skal tilkynningin vera undirrituð af hinum slasaða og þjálfara hans og stimpluð af íþróttafélaginu. Einnig skal fylgja beiðni læknis um sjúkraþjálfun ef óskað er eftir endurgreiðslu vegna sjúkraþjálfunar.
5. grein
Bætur slysatrygginga ÍSÍ nema allt að 80% af kostnaðarhluta sjúklings vegna
sjúkraþjálfunar og beinnar læknismeðferðar, skv. opinberum taxta TR. Ef hinn
slasaði þarfnast meðhöndlunar hjá sjúkraþjálfara oftar en tuttuguogfimm sinnum, áskilur ÍSÍ sér rétt til að krefjast nýrra gagna og upplýsinga um sjúkraferlið og meta hverju sinni, hvort bætur skulu áfram greiddar.
REGLUGERÐ FYRIR SLYSATRYGGINGARSJÓÐ
ÍÞRÓTTABANDALAGS REYKJAVÍKUR
1.gr.
Nafn sjóðsins er Slysatryggingarsjóður Íþróttabandalags Reykjavíkur.
2.gr.
Tilgangur sjóðsins er að greiða hluta sjúkrakostnaðar sbr. 6. grein vegna
íþróttafólks innan bandalagsins, 16 ára og yngri sem greitt hafa æfinga- og
félagsgjöld á tjónsdegi, gegn slysum við íþróttaæfingar, á íþróttamótum,
sýningum og kappleikjum á vegum viðkomandi íþróttafélags.
3.gr.
Tekjur sínar fær sjóðurinn á þann hátt, að félög greiða í hann fyrir hvern
iðkanda ákveðna upphæð, sem ákveðin er á þingi ÍBR. Jafnframt hefur
sjóðurinn tekjur af vöxtum og verðbótum af bankainnistæðu.
4.gr.
Slys skal tilkynna innan fjögurra vikna frá slysdegi.
Óheimilt er að úrskurða bætur eftir umsóknum, sem ekki gefa fullnægjandi
upplýsingar samkvæmt umsóknareyðublöðunum.
5.gr.
Grundvöll bótaréttar má endurskoða hvenær sem er og samræma bætur
þeim breytingum, sem orðið hafa.
6.gr.
Sjúkrakostnaður sá, sem sjóðurinn greiðir að fullu er eftirfarandi:
1) Flutningur á slysadeild.
2) Gjald fyrir fyrstu komu á slysamóttöku og röntgendeild.
3) Gjald fyrir eina endurkomu.
Ekki er greitt fyrir lyfjakostnað, leigu eða kaup á hjálpartækjum eða
sjúkraþjálfun.
7.gr.
Bætur skal yfirleitt inna af hendi til þess félags, sem um bæturnar sótti.
Heimilt er þó að greiða til bótaþega sjálfs, enda leggi hann þá fram skriflega
tilvísun viðkomandi félags.
8.gr.
Slysatryggingarsjóðurinn skal jafnan vera undir stjórn og umsjá
framkvæmdastjórnar ÍBR. Fé sjóðsins skal ávaxta í bönkum eða sparisjóðum,
svo og með kaupum á verðbréfum, tryggðum með ríkisábyrgð.
9.gr.
Reikningsár sjóðsins er almanaksárið og skal sjóðsstjórn leggja fram
endurskoðaða ársreikninga hans á ársþingi ÍBR. Endurskoðendur hans eru
endurskoðendur ÍBR.
10.gr.
Reglugerð þessari getur þing bandalagsins breytt og þarf til þess einfaldan
meirihluta atkvæða.
Samþykkt á þingi ÍBR í mars 2002.