Æfingagjöld

Handknattleikur, æfingagjöld 2009-2010

 Á starfsárinu 2009-2010 verða æfingagjöldin innheimt á sama hátt og verið hefur síðustu ár að viðbættu því að unnt er að greiða þau að hluta eða öll leyti með frístundakorti.  Fyrir þetta starfsár eru æfingagjöld fyrir hvert barn eftirfarandi:

Flokkur

September - janúar

Janúar- maí

Afsláttur vegna systkina og /eða fótboltaiðkunnar

4. og 3. flokkur

kr. 25.000 

kr. 25.000 

10 %

7., 6. og 5. flokkur

kr. 20.000 

kr. 20.000 

10 %

8. flokkur

kr. 12.500

kr. 12.500

10 %

 

  • Hægt er að dreifa greiðslum í allt að 6 mánuði með Visa eða Euro.  Einnig er hægt að millifæra inn á reikning Unglingaráðs,  0130-05-079019 kt. 520804-2420         
  • Umsjón með skráningu og innheimtu æfingagjalda er í höndum íþróttastjóra og unglingaráðs. Auk þess mun þjálfari hvers flokks taka við skráningarblöðum og veita frekari upplýsingar.  
  • Hér er skráningarblað fyrir iðkendur.

Frístundarkort – upplýsingar

Til að nýta sér Frístundakortið þarf fyrst að skrá iðkandann hjá félaginu með því að fylla út þetta skráningarblað og senda á netfangið: oliola@vikingur.is eða koma við á skrifstofu Víkings í Víkinni.  Að skráningu lokinni færir félagið iðkandann inn í Rafræna Reykjavík og getur það ferli getur tekið nokkra daga.  Foreldrar/Forráðamenn iðkandans þurfa svo að ganga frá úthlutun Frístundakortsins á Rafrænni Reykjavík.

  • Athugið að hafi foreldri/forráðamaður ekki gengið frá úthlutun Frístundakortsins í samræmi við skráningu á  skráningarblaði eigi síðar en tveimur vikum eftir að skráningarblaðinu er skilað, má eiga von á að viðkomandi fjárhæð verði skuldfærð á kreditkort foreldris/forráðamanns.  Athugið að einnig þarf að ganga frá úthlutun Frístundakortsins fyrir árið 2008 þegar opnað hefur verið fyrir það á nýju ári á Rafrænni Reykjavík.
  • Á skráningarblaðið þarf að setja inn þá upphæð sem ætlunin er að úthluta til félagsins og draga þá upphæð frá æfingagjaldinu og greiða mismuninn. Iðkendur verða að vera með lögheimili í Reykjavík til að geta nýtt sér Frístundakortið.  Fjárhæð frístundakorts nýtist aðeins vegna iðkunar á viðkomandi ári.
  • Ef einhverjar spurningar vakna varðandi Frístundakortin eða skráningarnar hafið þá samband við Ólaf í síma 581-3245.  Einnig er hægt að nálgast nánari upplýsingar um Frístundakortið á www.rvk.is og www.itr.is.