Öruggur sigur 2. fl. Víkinga í handbolta að Ásvöllum
30.11.2009


Leikurinn byrjaði frekar jafnt en Víkingar voru þó heldur fyrri til að skora. Staðan var 2-2 eftir um 6 mínútna leik en þá skoruðu Víkingar tvö mörk í röð og komust í 2-4. Þeir komust síðan í 4-6 og 4-7 þegar Óttar skoraði úr tveim vítum í röð. Hjálmar skoraði gott mark af línunni og Óttar skoraði enn úr víti. Staðan var þá orðin 5-9. Víkingar misstu mann útaf en Óttar skoraði með langskoti og kom Víkingum í 5-10. Haukar svöruðu með þremur mörkum í röð og minnkuðu muninn í 8-10. Hjálmar skoraði mark af línunni og Óttar skoraði enn með góðu skoti. Jói, Gestur, Ingólfur og Óttar skoruðu svo áður en flautað var til hálfleiks en staðan var 10-16 í hálfleik. Víkingar misnotuðu vítakast þegar leiktíminn var runninn út. Víkingar spiluðu geysiþétta vörn þegar seinni hálfleikur hófst og skoruðu síðan hvert markið á fætur öðru. Haukar áttu ekkert svar við góðum leik Víkinga og bilið jókst jafnt og þétt. Staðan var orðin 13-25 þegar seinni hálfleikur var hálfnaður. Haukar höfðu þá skorað þrjú mörk á móti níu í hálfleiknum.


Víkingar misstu þá mann útaf og Óttar var tekinn úr umferð. Haukar gengu þá á lagið og skoruðu nokkur mörk gegn einu marki Víkinga og minnkuðu muninn í 19-26. Jói skoraði þá mark með góðu langskoti og Óttar skoraði tvö þannig að munurinn varð tíu mörk á nýjan leik. Undir lok leiksins skiptu Víkingar svo flestum varamönnum inn á og jafnaðist þá munurinn á liðunum og Haukar minnkuðu muninn. Víkigar sigruðu því að lokum með sex marka mun. Sterk liðsheild skapaði fyrst og fremst þennan sigur. Vörnin vann mjög vel saman en húnhefur tekið framförum í hverjum leik í vetur. Hún lagði grunninn að góðum sigri Víkinga. Sóknin skilaði sínu einnig vel og var gott að sjá hvað breiddin í sókninni er mikil hjá liðinu. Ekki má gleyma því að Halldór varði eins og berserkur en hann stóð í markinu stærstan hluta leiksins. Hann varði á þriðja tug skota. Halldór hefur sýnt mjög jafna og góða leiki í vetur og er orðinn mjög öruggur milli stanganna. Sama má segja um Óttar sem stendur alltaf fyrir sínu í sókn sem vörn. Fyrir utan að skora nokkur mörk þá átti Jói margar góðar línusendingar á Hjálmar sem annað hvort skilaði þeim af öryggi í netið eða fékk dæmt vítakast. Liðinu hefur í heild sinni farið mikið fram frá fyrsta leik í vetur og verður spennandi að fylgjast með þeim það sem eftir er mótsins ef fer fram sem horfir. Það er undir strákunum sjálfum komið hve langt þeir ná.
Þessir skoruðu mörkin:
Óttar-11
Hjálmar-7
Jói-5
Gestur- 2
Benni-3
Ingólfur-2