Öruggur sigur Víkings á Fjölni
4.12.2009


Liðin byrjuðu heldur rólega en Fjölnir komst í 3-1. Víkingar voru lengi í gang og voru Fjölnispiltar yfir þar til staðan var 4-4 um miðjan fyrri hálfleik. Þá komust Víkingar yfir með marki frá Davíð og eftir það litu þeir aldrei til baka. Svenni skoraði þrjú mörk í röð með þrumuskotum og staðan var orðin 4-8. Fjölnir skoraði eitt mark en Víkingar svöruðu með fjórum mörkum frá Hjálmari, Þresti, Sigurði og Gumma. Þá skoruðu Fjölnismenn 3 mörk í röð en Gummi og Þröstur skoruðu síðustu mörk Víkinga í hálfleiknum. Staðan í hálfleik var 9-14. Hjálmar skoraði fyrsta markið í seinni hálfleik en Fjölnir hékk í Víkingum upp í 12-17. Þá tóku Víkingar öll völd á vellinum og skoruðu hvert markið á fætur öðru án þess að Fjölni tækist að svara sem neinu nam. Staðan var orðin 14-25 um miðjan seinni hálfleik.


Óttar kom inn á miðjuna í þessum hluta og skoraði tvö mörk. Hjálmar skoraði gott mark eftir frábæra sendingu frá Gumma. Í stöðunni 17-28 héldu Víkingar áfram að auka forskotið þrátt fyrir að allir varamenn Víkinga væru komnir inn á Völlinn. Lokastaðan varð 19-34. Björn varði ágætlega en Halldór kom inn á þegar 10 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. Hann stóð sig mjög vel og varði m.a. eitt víti eins og Björn í fyrri hálfleik. Það er ekki mikið um þennan leik að segja utan að sigurinn endurspeglar muninn á liðunum. Fjölnir er með marga unga leikmenn sem þurfa sinn tíma. Nú bíður bikarleikur í Víkinni á mánudaginn. Því var gott að geta notað alla varamenn liðsins til að þeir sem meira mæðir á að öllu jöfnu hafi getað hvílt sig seinni hluta leiksins.
Þessir skoruðu mörkin:
Þröstur-7
Svenni-7
Davíð-1
Hjálmar-7
Gummi-3
Siggi-1
Arnar-3
Óttar-3
Jói-2