lesa meira

Tap gegn Gróttu í tvíframleingdum leik.

8.12.2009
Víkingsliðið byrjaði frábærlega og komst í 9-2 þar sem Svenni fór hamförum og skoraði hvert gullmarkið en Gróttumenn gáfust ekki upp og náðu að minnka muninn í 13-12 en þannig var staðan í hálfleik. Í síðari hálfleik var jafnræði með liðunum en um miðjan hálfleik komumst við yfir 23 - 19 og síðan 24 - 21 en þá kom slæmur kafli hjá okkar mönnum og Grótta náið að jafna og var því framlengt. Að lokinni fyrri framlengingunni var aftur jafnt og því þurfti að framlengja aftur þá hafði Grótta betur og sigraði að lokum 35 - 34.
Strákarnir geta verið stoltir af þessum leik og sýndu að það býr mikið í þessu liði.
Næsti leikur verður á föstudaginn en þá koma Selfyssingar í heimsókn.