Víkingur - Selfoss í kvöld.
11.12.2009

Meistarflokkur karla mæta Selfyssingum í kvöld klukkan 19:30 en þeir eru eins og er öðru sæti deildarinar 3 stigum á undan okkur. Þetta er einn af mörgum úrslitaleikjum þessara deilda og því liggur mikið undir í kvöld. Þetta er síðasti leikur okkar fyrir áramót þannig að það verður örugglega vel tekið á því.
Við óskum eftir því að allir Víkingar mæti í kvöld og styðji okkar lið en stemminginn á síðustu leikjum hefur verið stórkostlega og erum við að ná að byggja upp einn skemmtilegast heimavöll landsins.