lesa meira

Tap fyrir Selfyssingum í Víkinni

11.12.2009

Leikurinn byrjaði rólega en Selfyssingar voru alltaf skrefinu á undan í byrjun. Davíð opnaði markareikning Víkinga eftir u.þ.b. 3 mínútur og Hjálmar jafnaði svo leikinn í 2-2. Selfoss skoraði tvö mörk áður en Svenni minnkaði muninn í 3-4. Selfoss skoraði enn tvö mörk en Hjálmar minnkaði muninn í 4-6. Gummi minnkaði muninn í 5-6, Hreiðar skoraði svo tvö mörk og Svenni jafnaði síðan leikinn 8-8. Hjálmar kom Víkingum yfir í 9-8 og Þröstur kom þeim aftur yfir í 10-9. Þá kom hræðilegur kafli hjá Víkingum og Selfoss skoraði fimm mörk í röð án þess að Víkngar kæmust á blað og breyttu stöðunni í 10-14. Þá skoraði Hreiðar mark og Óttar annað og staðan var 12-14. Hreiðar og Hjálmar skoruðu síðan tvö síðustu mörk Víkinga í hálfleiknum en Selfoss átti síðasta orðið og skoraði mark þegar ein sekúnda var til hálfleiks. Þeir leiddu 14-17 í hálfleik. Víkingar áttu ekki góðan leik í fyrri hálfleik. Mikið var um feilsendingar, vörnin vann ekki nógu vel saman og sóknin var mistæk. Björn átti í nokkrum erfiðleikum í markinu um tíma. Þá kom Halldór inn á og stóð sig vel. Víkingar náðu ekki að nýta sér liðsmuninn þegar Selfyssingum var vísað útaf heldur náðu þeir að auka forskotið einum færri.

Víkingar komu sterkari til seinni hálfleiks, þeir voru grimmari í vörninni og sóknin gekk heldur betur upp. Hjálmar átti fyrstu þrjú mörk hálfleiksins, skoraði tvö og fiskaði eitt víti. Staðan var þá 18-20. Selfyssingar náðu fjögurra marka forystu áður en Svenni minnkaði muninn í 19-22. Óttar skoraði mark, Svenni annað og síðan Óttar aftur og staðan er 22-24. Víkingar ná að minnka muninn í eitt mark með mörkum frá Svenna og Hreiðari sem skoraði eftir gott hraðaupphlaup. Þröstur skoraði úr öðru hraðaupphlaupi og Gummi jafnar leikinn í 26-26 úr víti sem Hjálmar fiskaði. Gummi jafnar leikinn aftur í 27-27 eftir að brotið er á Hjálmari og dæmt víti á nýjan leik. Þá eru um tvær mínútur til leiksloka. Selfyssingar skora tvö mrk í röð eftir mistök hjá Víkingum og staðan orðin vonlítil. Óttar minnkar muninn í 28-29 en Selfoss skorar tvö mörk á nýjan leik. Svenni minnkar muninn í 29-31 með marki nær því frá miðju vallarins. Siggi skorar síðasta mark Víkinga og leikurinn endar með tveggja marka sigri Selfyssinga 30-32. Víkingar áttu heilt yfir ekki góðan dag. Vörnin vann ekki vel saman og sóknin var mistæk. Mikið var um feilsendingar eins og áður sagði og tapaðist boltinn oft af þeim sökum. Hjálmar átti góðan leik á línunni, skoraði mikið ef ekki var brotið á honum sem þýddi að dæmt var vítakast. Hreiðar átti einnig ágætan leik og skoraði góð mörk úr hraðaupphlaupum. Óttar átti góða innkomu eins og alltaf. Þetta tap var slæmt því ef leikurinn hefðu unnist var deildin galopin. Nú verður róðurinn þyngri fyrir Víkinga.
Þessir skoruðu mörkin:
Davíð-1
Hjálmar-6
Svenni-6
Gummi-4
Hreiðar-6
Þröstur-2
Óttar-4
Sigurður-1