2. fl. Víkinga vann Aftureldingu í bikar
19.12.2009


Víkingar byrjuðu af krafti og náðu strax undirtökunum í leiknum. Þeir voru skrefinu á undan og juku forystuna hægt en örugglega. Um miðjan fyrri hálfleikinn var staðan orðin 7-14 Víkingum í hag. Þá bættu Víkingar varnarleikinn og náðu hverju hraðaupphlaupinu á fætur öðru. Þeir juku forystuna hröðum skrefum undir lok hálfleiksins. Gestur fór hamförum á sprettinum fram völlinn og skoraði hvert markið á fætur öðru. Staðan í hálfleik var 9-20 og leit út fyrir stórsigur Víkinga.
Aftureldingar piltar komu einbeittir til seinni hálfleiks á sama tíma og Víkingar voru værukærir. Það kann aldrei góðri lukku að stýra að leggja sig ekki fram að fullu og Afturelding saxaði á gott forskot Víkinga. Þeir minnkuðu muninn í 14-22 og 17-23. Þá tóku Víkingar góðan kipp og juku forystuna í 18-27 en þá fór allt í baklás hjá liðinu. Mosfellingar skoruðu hvert markið á fætur öðru og minnkuðu muninn í 24-28. Þá loks tóku Víkingar sig saman í andlitinu og sýndu hvað býr í liðinu undir lok leiksins. Leiknum lauk með öruggum sigri Víkinga 28-36 enda þótt markamunurinn væri mun minni en efni stóðu til í hálfleik. Víkingar misnotuðu tvö vítaköst.


Eins og fyrri hálfleikurinn var góður hjá Víkingum þá var seinni hálfleikur ekki vel leikinn hjá Víkingum. Sóknin var mistæk og vörnin vann sína vinnu alls ekki eins og hún getur gert. Þar af leiddi að markvarslan var ekki eins góð og hún þarf að vera. Strákarnir þurfa að draga ákveðinn lærdóm af þessum leik. Það má aldrei vanmeta andstæðinginn og í hvern leik á að fara af fullum þunga. Allir leikmenn Víkinga spiluðu í leiknum og það er jákvætt að sem flestir fái leikreynslu og axli ákveðna ábyrgð. Það skilar sér síðar.
Þessir skoruðu mörkin:
Gestur-12
Jói-6
Hjálmar-3
Óttar-6
Davíð-2
Hjálmar-3
Guðmundur-1
Sibbi-2
Nr-19-2
Nr-20-1
(færi nöfnin inn síðar)