Söfnunarsunnudagurinn mikli, 10. janúar
4.1.2010
Ágætu Víkingsforeldrar. Gleðilegt nýtt ár!
Nú sem fyrr er mikilvægt að tryggja öflugt barna- og unglingastarf íþróttafélaga og hlúa að börnunum okkar. Nýta þarf allar færar leiðir til fjármögnunar á starfinu og því er nú blásið til allsherjarsöfnunar í hverfinu, líkt og gert var fyrir ári síðan með góðum árangri. Ýmis nýmæli verða við þessa söfnun. Nú verður ekki einvörðungu safnað dósum og rafhlöðum heldur einnig jólatrjám, bylgjupappa og plasti. Auk þess verður fólk beðið um að gefa gamla gsm-síma sem það er hætt að nota (bæði heila og úr lagi gengna). Söfnun á jólatrjám er þjónusta sem veitt er gegn 1.000 kr. gjaldi og kemur til af því að Borgin mun ekki lengur sækja trén við lóðarmörk.
Iðkendum í öllum flokkum í bæði fótbolta og handbolta, er ætlað að mæta ásamt foreldri, sunnudaginn 10. janúar nk. Miðum verður dreift á æfingum flokkanna til að tryggja enn frekar þátttöku barnanna í þessari söfnun. Yngri iðkendur (4.-7. flokkur) sjá um söfnunina en þeir elstu (3. flokkur) annast flokkun. Mikilvægt er að foreldri komi með iðkanda til að hjálpa til og auðvelda flutning á efninu. Sérstök teymi verða í söfnun jólatrjáa og þarf að fá til liðs foreldra með góðar kerrur í það verkefni.
Ágóði söfnunarinnar mun renna til barna- og unglingaráða fótbolta og handbolta í takt við vinnuframlag. Þátttakendur fá veitingar og taka þátt í hverfisstemningu um bætt umhverfi, öflugra íþróttastarf og félagslegu hópefli iðkenda og foreldra.
Mæting í söfnunina er kl. 10:30 og við skorum á alla sem vettlingi geta valdið til að mæta og styðja við bakið á barna- og unglingastarfi hverfisfélagsins ykkar og sömuleiðis að taka vel á móti börnunum þegar bankað er upp á og óskað eftir framlagi.
ÁFRAM VÍKINGUR !
Guðmundur Torfason, formaður BUR, knattspyrnudeild
Guðrún Símonardóttir, formaður BUR, handboltadeild
Jón H. Steingrímsson, gjaldkeri BUR, knattspyrnudeild
Soffía Hilmarsdóttir, gjaldkeri BUR, knattspyrnudeild og handboltadeild
Ásbjörn Sveinbjörnsson, meðstjórnandi BUR, handboltadeild
Þuríður Stefánsdóttir, ritari BUR, handboltadeild