lesa meira

Metuppskera og metþátttaka í dósasöfnuninni

11.1.2010
Söfnunarátak  barna- og unglingaráða Víkings í fótbolta og handbolta tókst eins og til var stofnað og gott betur. Reyndir menn í söfnunarbransa félagsins segja að meira hafi safnast af dósum og flöskum en nokkru sinni fyrr og að fleiri hafa tekið þátt í verkefninu en áður, bæði foreldrar og ungmenni.

Múgur og margmenni var í Víkinni þegar skráning hófst  kl. 10:30 í morgun og ljóst þá þegar að margir höfðu ákveðið að hlýða kallinu, sem var eins gott því þetta var umfangsmeiri söfnun en dæmi eru um áður hjá Víkingi.  Hefðbundið er að bjóða íbúum hverfisins að hirða flöskur og dósir úr geymslum og bílskúrum eftir veisluhöld jóla og áramóta en nú bættist við að taka jólatré, ónýta farsíma, plast og bylgjupappa, auk þess að losa rafhlöðukassana sem dreift var í hverfinu í ársbyrjun 2009.

Skemmst er frá að segja að kreppan virðist ekki hafa dregið úr þorsta fólks á upptökusvæði Víkings, ef marka má uppskeruna í söfnuninni í dag. Reynsluboltar giskuðu í lok dags á að safnast hefðu um 40.000 dósir og flöskur, sem er meira en áður hefur sést í einni söfnun. Þetta er auðvitað ágiskun en byggist á reynslu og samanburði við fjölda neta og kara nú og fyrri ár. Verkinu var lokið um þrjúleytið, sem er á svipuðum tíma enn einu sinni.

Fjöldinn allur af ónýtum farsímum barst í Víkina með söfnunarfólkinu og tunnufylli af rafhlöðum sömuleiðis, tvöfalt meira af þeim úrgangi en í fyrra.

Síðast en ekki síst ber að nefna jólatrén, sem fylltu tvo stóra gáma. Enginn vafi leikur á að enn fleiri munu nýta sér þessa leið til að losna við jólatrén sín að ári og styrkja Víking í leiðinni. Það var greinilegt að boðskapurinn um jólatrén hafði ekki skilað sér til allra þrátt fyrir dreififarga jólagreninu eða –furunni. Þetta er góð fjáröflunarleið og þakklát þjónusta við íbúana, ekki síður en að losa þá við ónýtar rafhlöður eða aflóga farsíma.

Söfnunardagurinn var sem sagt bæði árangursríkur og skemmtilegur. Upp úr stendur samt að verkskipulagið var mjög gott, umfangsmikið og í hæsta máta skilvirkt. Forystumenn barna- og unglingastarfsins í Víkingi hafa greinilega tekið til hendinni við undirbúninginn, enda er gott skipuleg forsenda þess að svona stórt verkefni gangi fljótt og vel, eins og sannaðist í dag. Hafi þeir heila þökk fyrir framlag sitt, sem og auðvitað allir sem gáfu sig að verkefninu í dag, bæði iðkendur og foreldrar.