2. fl. Víkings í handbolta byrjar árið með góðum sigri
15.1.2010


Víkingar byrjuðu betur og skoruðu tvö fyrstu mörkin. Halldór varði víti og Óttar skoraði næstu þrjú mörk og staðan var orðin 5-3. Víkingar fengu víti eftir ljótt bort á Jóa sem Óttar skoraði úr og Val/Þró manni færri. Það var bara b yrjunin á því sem á eftir kom. Hemmi skoraði skoraði sjöunda markið en Valur/Þró svöruðu með tveimur mörkun. Benni, Jón og Gunni skoruðu en Val/Þró svöruðu jafnharðan og staðan var 10-8. Þá tóku Víkingar mikinn sprett, þéttu vörnina og sóknin gekk vel upp. Jón, Gunni, Hjálmar og Benni skoruðu án þess að Val/Þró næðu að svara og staðan var orðin 14-8. Hallór varði annað víti í stöðunni 14-9 en Val/Þró tóku góðan kipp undir lok leiksins og minnkuðu muninn. Staðan í hálfleik var 15-13 Víkingum í vil.


Í seinni halfleik voru liðin jöfn til að byrja með en svo sigu Valur/Þróttu á og náðu að jafna leikinn 18-18. Þá hafði mikið gengið á í útvísunum hjá báðum liðum en þó frekar hjá Víkingum sem voru fjórir á tímabili. Þegar VAl/Þró hafði náð að jafna girtu Víkingar sig í brók og bættu varnarleikinn verulega. Vörnin spilaði ákveðið og strákarnir unnu mjög vel saman. Óttar var tekinn úr umferð til að reyna að brjóta niður gott spil Víkinga. Allt kom fyrir ekki og Víkingar sigu fram úr jafnt og þétt. Benni skoraði 2, Hjálmar 2, Hemmi 1, Jói 1, Bjössi 1 og Óttar 1 á meðan Val/Þró náði einungis að skora eitt mark. Staðan var því orðin 27-19 þegar tvær mínútur voru eftir. Þá skipti Gummi varamönnum inná og Valur/Þró náði að minnka muninn í lokinn en lokatölur urðu öruggur sigur Víkinga 27-23.


Leikurinn var í stórum dráttum vel leikinn af Víkinga hálfu. Halldór varði vel og fór markvarslan batnandi þegar vörnin fór að vinna betur saman. Það var ánægjulegt að sjá hvað nýju strákarnir komu sterkir inn og settu mark sitt á leikinn. Jón skoraði góð mörk úr horninu og eins með langskotum en hann er örfhentur. Víkinga hefur vantað örfhentan hornamann um nokkurt skeið svo þarna kom aukin breidd í liðið. Vörnin vann vel saman og er varnarleikurinn aðalsmerki hópsins þegar hann nær virkilega vel saman. Sóknin var allgóð lengst af og skiptist markaskorunin á marga. Ekki verður komist hjá því að minnast á dómara leiksins en það gerir maður helst ekki. Víkingar voru utan vallar í 24 mínútur og Val/Þró eitthvað um 12 mínútur í leik sem var alls ekki grófur né ruddalega leikinn. Strákarnir í báðum liðum eru öflugir og takast á og þannig á það að vera. Vitaskuld var eitthvað um brot sem verðskulduðu kælingu en þessar útvísanir voru hreint út í hött. Það boðar aldrei gott þegar dómarar setja sjálfan sig í aðalhlutverkið inni á vellinum.
Þessir skoruðu mörkin:
Óttar-6
Hjálmar-4
Jói-2
Hemmi-2
Benni-6
Jón-4
Gunni-2
Bjössi-1