Bikarleikur hjá 2. fl. kk. í handknattleik
22.1.2010

Víkingar
taka á móti Selfyssingum í bikarkeppni 2. fl. kk í handknattleik í
Víkinni laugardaginn 23. janúar kl. 12:00. Leikurinn er liður í 8 liða
úrslitum bikarkeppninnar en Víkingar sigruðu Aftureldingu í fyrstu
umferð hennar. Víkingar og Selfoss hafa ekki spilað saman í vetur síðan
í fyrstu umferð deildarinnar. Þá sigruðu Selfyssingar með miklum mun
svo Víkingar eiga harma að hefna. Víkingar hafa verið á góðu skriði í
síðustu leikjum. Um áramótin bættist þeim góður liðsstyrkur þannig að
það má búast við spennandi leik á morgun. Víkingar eru hvattir til að
mæta í Víkina og styðja við bakið á strákunum í erfiðum leik.