Stórt tap hjá Víkingum gegn Selfossi
23.1.2010


Liðin skiptust á um að skora, Benni kom Víkingum í 9-6 en Selfoss seig jafnt og þétt á undir lok hálfleiksins. Leikmaður nr. 18 hjá Selfossi skoraði fjögur síðustu mörk liðsins og dró það áfram að mestu upp á eigin spítur. Óttar og Benni skoruðu síðustu mörk Víkinga í hálfleiknum en staðan var jöfn í hálfleik, 11-11. Framan af seinni hálfleik voru liðin mjög jöfn og skiptust á að skora. Selfyssingar voru heldur sterkari framan af. Hjálmar skoraði í stöðunni 12-13, Hermann skoraði 13-14 og Hjálmar jafnaði leikinn í stöðunni 14-14. Óttar kom Víkingum yfir úr víti í 15-14, Selfoss jafnaði en Jói kom Víkingum aftur yfir í 16-15. Óttar jafnaði 17-17 og Jói kom Víkingum yfir í 18-17. Óttar skoraði úr víti og Benni jafnaði leikinn 20-20. Þá hrundi allt sem hrunið gat hjá Víkingum. Selfoss komst í 24-21 og sleppti síðan aldrei þeim undirtökum sem þeir náðu á þessum tíma. Þeir komust síðan í 21-29 og úrslitin voru ráðin. Víkingar klóruðu aðeins í bakkann undir lok leiksins en hann endaði 25-33.


Því miður endaði leikur sem leit út fyrir að verða jafn og spennandi illa hjá Víkingum. Þeir léku afar illa seinni hluta síðari hálfleiks. Vörnin fann sig engan vegin og sóknin var ráðleysisleg. Boltinn tapaðist illa eða Selfyssingum var réttur boltinn upp í hendurnar. Þeir fengu þannig trekk í trekk ódýr hraðaupphlaup. Markvarslan var síðan eftir þessu því þegar vörnin er lek er markvörður varnarlaus. Leikmaður nr. 18 var langbesti leikmaður Selfyssinga. Hann skoraði 12 mörk og bjó þar að auki til fjölmörk mörk með stoðsendingum. Einnig voru hornamenn Selfoss liðsins drjúgir.


Dómgæslan var kapítuli út af fyrir sig í þessum leik. Það skal ekki sagt að hafi hallað á annað hvort liðið í dómgæslunni. Víkingar töpuðu leiknum ekki vegna dómgæslunnar heldur á eigin mistökum. En það er í fyrsta lagi vanvirða af hálfu HSÍ við leikmenn beggja liða að láta jafnaldra þeirra, sem er þar að auki í liði sem þeir eru að spila við í íslandsmótinu, dæma svona leik. Ungum dómurum er enginn greiði gerður með því að láta þá fara í verkefni sem þeir ráða ekki við og lið sem hafa lagt mikið á sig við æfingar mánuðum saman eiga kröfu á að fá þokkalega dómgæslu í eins mikilvægum leikjum og þessum. Í leik liða í 2. fl. er mikið tekist á og það þarf fullharðnaða dómara til að dæma þá, ekki síst bikarleiki. Óöryggi dómaranna sýndi sig best í því hvernig þeir létu þjálfara Selfoss liðsins komast athugasemdalaust upp með að mótmæla dómum og úthúða dómurunum bæði í fyrstu persónu og í þriðju persónu stóran hluta leiksins. Miðað við hvernig aðrir dómarar hafa tekið á mótmælum og athugasemdum þjálfara í Víkinni það sem af er vetri þá hefði þjálfarinn ekki verið lengi við stjórn liðsins í þessum leik með slíkri framgöngu heldur verið sendur fljótlega upp í bekki við eðlilega dómgæslu. Í síðasta leik Víkinga voru leikmenn liðsins sendir út af 12 sinnum og andstæðingarnir sex sinnum í leik sem var hvorki grófur eða ruddalegur. Nú fékk hvort lið tvær brottvísanir í leik sem var miklu harðar og grófar leikinn af beggja hálfu. Þessi samanburður segir einnig sína sögu.
Þessir skoruðu mörk Víkinga:
Óttar-7
Jói-5
Hjálmar-3
Benni-6
Jón-3
Ingólfur-1