Gott gengi hjá 5. flokki karla í handbolta.
27.1.2010
5.flokkur karla sendi tvö lið til leiks á Gróttu mótið á Seltjarnarnesi sem er hluti af Íslandsmótinu. A-liðið leikur í efstu deild og B-liðið í þeirri þriðju eftir að hafa unnið deildina fyrir neðan mjög sannfærandi á mótinu á undan. Nokkuð var um væntingar fyrir þetta mót enda hafa strákarnir verið að æfa gríðarlega vel seinustu mánuði, A-liðið setti sér markmið í haust að enda veturinn í efstu 3 sætunum meðan B-liðið ætlaði að halda áfram á sömu braut og á síðasta móti. Liðin byrjuðu misvel en A-liðið vann
sannfærandi sigur í fyrsta leik meðan B-liðið byrjaði á hælunum. Þetta var það
sem koma skildi í mótinu, á laugardeginum vann svo A liðið frábæran sigur á
Selfossi sem hefur unnið fyrstu tvö mótin til þessa, nú þurftu þeir bara að
klára seinustu tvo leikina sem voru gegn FH og Gróttu. FH var enginn fyrirstaða
og því var seinasti leikurinn spurningin um sigur á mótinu. Strákarnir leiddu í
hálfleik en náðu ekki að fylgja því eftir í seinni hálfleik og enduðu mótið með
eins marks tapi sem þýddi að lokum 2-3 sæti sem fyrirfram hefðu verið fín
úrslit en að lokum heldur sár. B-liðið stóð sig vel eftir erfiða byrjun og
náðu að halda sér uppi í 3.deildinni en þeir eru margir hverjir að taka sín
fyrstu skref í handbolta, leiðin liggur bara upp á við hjá þeim.
Mikill og ör vöxtur hefur verið á þessum
flokki á undanförnum mánuðum sem er líklega að fara skila sér í 3.liðinu á
yngra árinu og jafnvel verður hægt að senda lið til leiks á eldra árinu líka.
Það eru spennandi tímar framundan hjá þessu flokk og verður gaman að fylgjast
með þeim á komandi árum.