lesa meira

Víkingur lagði ÍR í Víkinni

28.1.2010

Hjálmar kom sterkur inn í upphafi leiksins leiksins og skoraði tvö fyrstu mörkin. Jafnt var á öllum tölum og skiptust liðin á að hafa eins marks forystu allann fyrri hálfleikinn. Svenni skoraði 3-4 og Hjálmar jafnaði leikinn 4-4. Davíð jafnaði 5-5 og Hjálmar skoraði næstu tvö mörk Víkinga og staðan var 7-6. Markvarslan var skki sérstaklega góð fyrri hluta hálfleiksins og kom þá Halldór í markið upp úr miðjum hálfleik. Davíð skoraði tvö mörk og kom Víkingum yfir í 9-8. Gummi skoraði 10-9 og þá skoruðu ÍRingar þrjú mörk í röð og breyttu stöðunni í 10-12. Davíð skoraði 11-12 og Þröstur jafnaði leikinn fyrir leikhlé í 12-12.

Svipuð barátta var í upphafi seinni hálfleiks, Gummi skoraði úr víti 13-12, ÍRingar skoruðu tvö mörk í röð og Hjálmar jafnaði 14-14. Þá styrktu Víkingar vörnina og sókn ÍRinga varð ómarkvissari. Víkingar seigluðust fram úr og juku muninn jafnt og þétt án þess að ÍR næði að svara. Svenni skoraði 15-14, Gummi 16-14, Svenni 17-14 og Arnar skoraði tvö góð mörk úr horninu og staðan var 19-14. Gummi kom Víkingum í 20-14 og einungis tíu mínútur voru eftir af hálfleiknum. ÍR hafði þá einungis skorað tvö mörk í tuttugu mínútur. Þá hrökk sókn þeirra í gang á nýjan leik og þeir fóru að saxa á forskot Víkinga. Svenni skoraði 21-16 og Davíð skoraði í stöðunni 22-19. Leikurinn var skyndilega orðinn spennandi undir lok leiksins þegar ÍR náði að minnka muninn í tvö mörk. Víkingar voru full værukærir á þessum kafla og hafa talið leikinn vera unninn. Svenni skoraði 23-20 og Arnar skoraði tvö mörk úr horninu undir lok leiksins sem endaði 25-23. Mikið var rekið út af undir lok leiksins og voru tveir menn útaf í einu hjá báðum liðum.

Víkingar unnu sigur án þess að sýna neinn afburða leik. Vörnin náði sér að vísu vel á strik í seinni hálfleik en gaf full mikið eftir undir lok leiksins. Halldór átti stórfína innkomu og varði á annan tug skota. Einnig átti Hjálmar góðan leik á línunni. Arnar kom sterkur inn í hornið seinni hluta leiksins. Víkingum bíður erfiður leikur út í Vestmannaeyjum á helginni og er ljóst að þeir verða að sýna betri leik ef þeir ætla sér að leggja IBV á heimavelli þeirra. Það er hins vegar nauðsynlegt ef þeir ætla að blanda sér í toppbaráttuna.
Þessir skoruðu mrörkin:
Hjálmar-6
Svenni-5
Davíð-5
Gummi-4
Arnar-4
Þröstur-1