Naumur en sætur sigur í Krikanum
4.2.2010


Benni skoraði fyrsta mark leiksins en FH svaraði með þremur mörkum. Hemmi minnkaði muninn en FH svaraði strax. Benni minnkaði muninn í 4-3 en þá skoruðu FH ingar þrjú mörk í röð og staðan var 7-3. Hjálmar skoraði 4. mark Víkinga, FH svaraði en þá fóru Víkingar að saxa á forskot FHinga. Vörnin hafði verið slök hjá Víkingum í byrjun leiksins og FHingar létu ekki segja sér það tvisvar og nýttu sér það vel. Þegar vörnin þéttist þá gekk leikur Víkinga betur upp. Hemmi skoraði 8-5 og Jói skoraði 8-6. Benni minnkaði muninn í stöðunni 9-7 og þá komu fjögur mörk frá Jóa í röð. Hann skoraði góð mörk með langskotum og einnig úr vítum en Óttar, vítaskytta liðsins, er meiddur. Hemmi jafnaði leikinn 12-12 og leikurinn var opinn á nýjan leik. Jón kom Víkingum yfir 12-13 en FH skoraði tvö mörk í röð. Benni jafnaði 14-14 en tvö síðustu mörk hálfleiksins voru FHinga og staðan í hálfleik var 16-14.


Hjálmar skoraði fyrsta mark hálfleiksins en þá kom hræðilegur kafli hjá Víkingum og FH náði fimm marka forystu, 20-15. Þá fóru Víkingar að spila vörnina aftur af eðlilegri getu og söxuðu jafnt og þétt á forskot FH. Jón skoraði 20-16, Hjálmar skoraði tvö mörk og Gunni minnkaði muninn í eitt mark, 20-19. Hjálmar jafnaði síðan leikinn í 20-20. og Jói kom Víkingum yfir með fallegu snúningsmarki. FH tók aftur við sér og skoraði 3 mörk í röð og leit þá út fyrir að þeir væru að slíta sig frá Víkingum á ný. Gunni minnkaði muninn í 23-22, FH skoraði og Benni minnkaði muninn aftur í 24-23. Jói jafnaði leikinn í 24-24 þegar um 10 mínútur voru eftir. FH skoraði tvö mörk en Hjálmar skoraði 26-25. Jón jafnaði leikinn í 26-26 með góðu langskoti og Jói kom Víkingum yfir úr víti. FH jafnaði leikinn en Jón kom Víkingum yfir á nýjan leik. Benni skoraði síðan tvö mörk og kom Víkingum í 28-30 þegar rétt um mínúta lifði leiks. FH minnkaði muninn þegar 40 sekúndur voru eftir. Víkingar voru ákveðnir að nýta síðustu sóknina vel, fengu dauðafæri á línunni en skutu í stöng, náðu frákastinu en náðu ekki að nýta tækifærið. FH fékk því hraðaupphlaup þegar þrjár sekúndur voru eftir og frítt dauðafæri á línunni en Ísleifur varði snilldarlega og bjargaði langsóttum sigri fyrir Víkinga.


Víkingar hrósuðu sigri í leikslok en þrátt fyrir sigur var leikur liðsins alltof ójafn. Vörnin var á tíðum slök og vantaði þá allan hreifanleika í hana. Þegar vörnin hrökk í gang þá gekk sóknin á stundum ekki eins og skyldi. Það var ekki fyrr en síðustu 20 mínútur leiksins sem leikur liðsins var góður bæði í sókn og vörn. Halldór fann sig ekki í markinu sem kannski var ekki von þegar vörnin var götótt. Ísleifur kom því í markið í seinni hálfleik. Hann varði ágætlega, tók eitt víti og bjargaði síðan sigrinum í lok leiksins. Jói stóð sig vel í leiknum, skoraði góð mörk með langskotum og fimm mörk úr vítum. Benni var einnig ógnandi með góð gegnumbrot og langskot. Hjálmar stóð fyrir sínu á línunni og fiskaði nokkur vítaköst auk markanna sem hann skoraði.
Þessir skoruðu mörkin:
Benni-7
Hemmi-3
Hjálmar-6
Jói-8
Jón-4
Gunni-2
Það eru fleiri myndir frá leiknum inn á myndasíðu handknattleiksdeildar undir 2. flokkur.