Víkingur vann öruggan sigur á Þrótti í Víkinni
5.2.2010


Leikurinn var ekki sérlega skemmtilegur á að horfa framan af. Mikið var um feila og klaufaskap og virtust liðin enn vera hálf ryðguð eftir jólafríið sem var búið að vera ansi langt. Fyrsta korterið fór í að finna taktinn. Víkingar sigur hægt og bítandi fram úr þrátt fyrir að spila frekar slakan handbolta. Í hálfleik var staðan 12-6, Víkingum í vil. Víkingar tóku sig saman í andlitinu í síðari hálfleik og juku forskotið jafnt og þétt. Þegar um tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik var staðan 18-10.


Víkingar keyrðu upp hraðann það sem eftir lifði leiks og léku betur bæði í sókn og vörn. Vörnin þéttist og sóknin náði mörgum góðum upphlaupum. Leiknum lauk með öruggum sigri Víkinga 29-13. Strákar úr 2. flokk fengu tækifæri þegar leið á leikinn og stóðu fyrir sínu. Jói spilaði síðustu 20 mínútur leiksins og varð engu að síður markhæsti maður Víkinga. Hann skoraði fín mörk með uppstökkum og einnig af gólfinu. Jón kom sterkur inn í vörnina og sýndi að hann er til alls líklegur í þeim efnum. Björn varði vel þegar leið á leikinn og sýndi fyrri takta. Hjálmar stóð fyrir sínu á línunni. Binni kom aftur inn í liðið eftir að hafa verið frá vegna meiðsla síðan snemma vetrar.


Það er í sjálfu sér ekki gott að dæma liðið eftir þennan leik en Víkingar gerðu það sem þeir þurftu að gera sem var að vinna öruggan sigur. Nú bíður leikur við Aftureldingu á þriðjudaginn.
Þessir skoruðu mörkin:
Gummi-2
Siggi-1
Hjálmar-5
Benni-1
Þröstur-4
Arnar-1
Jón-2
Davíð-2
Kiddi-3
Svenni-2
Jói-6
Fleiri myndir úr leiknum má finna
hér