lesa meira

Sætur en erfiður sigur í Víkinni

6.2.2010

Liðin byrjuðu frekar rólega en Akureyringar voru fyrri til að brjóta ísinn. Jón jafnaði fyrir Víkinga og Jói skoraði síðan tvö mörk. Akureyringar jafna en Hjálmar skorar og kemur liðinu í 4-3. Ingólfur skorar af línunni og Hjálmar skorar aftur og staðan er orðin 6-3 fyrir Víkinga. Jói kemur þeim í 7-3 en þá skora Akureyringar tvö mörk í röð. Þá kemur mjög góður kafli hjá Víkingum. Hjálmar skorar tvö mörk, Gunni eitt og Jói tvö. Akureyringar ná að skora eitt en Hjálmar svarar. Ingólfur og Jói skora og staðan er 15-7. Hvort lið skorar tvö mörk fram að lokum hálfleiksins og voru það Jón og Hlynur sem skoruðu fyrir Víkinga. Fyrri hálfleikur var mjög vel leikinn af hálfu Víkinga og var hvergi veikan blett að finna hjá liðinu og fyrir aftan vörnina stóð Halldór og varði eins og berserkur.

Bæði lið byrjuðu heldur hægt í seinni hálfleik, Akureyringar skora en Jói svarar. Akureyringar voru heldur sterkari og skora tvö mörk áður en Hjálmar svarar. Þá skora Aureyringar þrjú mörk í röð og staðan er orðin 19-15. Jói skorar og kemur Víkingum í 20-15, Akureyringar svara en Benni skorar. Akureyringar skora en Hjálmar skorar af línunni. Þá fer allt í handaskol hjá Víkingum, þeir glutra frá sér boltanum á ótrúlegan hátt trekk í trekk í sókninni, klúðra víti og Akureyringar fá ódýr hraðaupphlaup. Halldór tók það sem hægt var að ætlast til að hann gerði og gott betur og hélt liðinu þannig inni í leiknum. Forskot Víkinga er komið niður í eitt mark þegar Sibbi skorar úr víti. Sibbi skorar síðan aftur með gegnumbroti og Víkingar ná þriggja marka forystu. Akureyringar skora en Jón neglir boltanum í samskeytin og tryggir sigur Víkinga þegar um 40 sekúndur eru eftir. Akureyringar skora síðasta mark leiksins og endar hann 25-23. Minnstu munaði að Víkingar töpuðu niður stóru forskoti frá fyrri hálfleiknum. Leikurinn var alltof kaflakenndur hjá þeim. Liðið saknar nokkuð leikstjórnandans Óttars sem er meiddur. Halldór varði um 25 skot í leiknum og sum þeirra úr dauðafærum. Markmaður Akureyringa var einnig besti maður norðanmanna. Víkingar gerðu honum reyndar lífið léttara að skjóta mikið á hann niðri þar sem hann er sterkur.

Þessir skoruðu mörkin:
Jón-3
Jói-8
Hjálmar-6
Ingólfur-2
Gunni-1
Hlynur-1
Benni-1
Hemmi-1
Sibbi-2
Fleiri myndir frá leiknum má finna hér