lesa meira

Tap fyrir Aftureldingu í mikilvægum leik.

10.2.2010

Leikurinn byrjaði rólega hjá báðum liðum en Davíð braut ísinn fyrir Víkinga og skoraði fyrsta mark leiksins. Afturelding svaraði með tveimur mörkum en Gummi jafnaði 2-2. Afturelding skoraði aftur tvö mörk en Davíð minnkaði muninn í 4-3. Sóknir beggja liða voru ómarkvissar framan af leiknum og lítið skorað. Hjálmar jafnaði leikinn í 4-4 þegar 15 mínútur voru liðnar af leiknum. Þá skorar Afturelding hvert markið á fætur öðru og kemst í 9-4 þegar rúmar tuttugu mínútur voru liðnar af leiknum. Á þessu tíma léku Víkingar illa, glutruðu boltanum í hendur Aftureldingar sem fengu ódýr hraðaupphlaup. Víkingar taka loks við sér og Benni skorar 9-5. Siggi skorar 9-6 og þá er Víkingur rekinn af leikvelli. Kiddi skorar 9-7 og þá er annar Víkingur rekinn af leikvelli og þeir eru tveimur færri. Davíð skorar 9-8 og Jói jafnar leikinn í 9-9 þegar einn Víkingur er enn utan vallar. Afturelding skorar síðasta mark hálfleiksins og fer í leikhlé með eins marks forystu 10-9. Þetta segir svolítið um leik Víkinga í fyrri hálfleik að þeir ná að vinna upp forskot Aftureldingar þegar þeir eru einum og tveimur færri.

Afturelding skorar fyrsta mark seinni hálfleiks en Svenni skorar 11-10. Hann jafnar síðan með miklu skoti í 11-11. Afturelding skorar tvö mörk en Davíð minnkar muninn. Siggi jafnar síðan leikinn eftir að Jói hafði skotið í stöng úr horninu. Þá skorar Afturelding enn tvö mörk og Jói minnkar mininn. Afturelding skorar síðan hvert markið á fætur öðru og kemst í 18-14. Víkinar duttu niður á lágt plan á þessum hluta leiksins, töpuðu boltanum hvað eftir annað og tóku ótímabær skot sem enduðu í hraðaupphlaupi. Davíð skorar loks tvö mörk og minnkar muninn í 18-16. Afturelding skorar en Gummi minnkar muninn í 19-17. Afturelding missir taktinn, Þröstur skorar gott mark úr horninu og Davíð jafnar leikinn 19-19. Síðan fengu Víkingar mörg tækifæri til að ná góðu forskoti en allt kom fyrir ekki. Þeir klúðra víti, skjóta í markmanninn úr dauðafæri af línunni og reyna hæpið sirkusmark sem misheppnast. Svenni kemur loks Víkingum yfir4 19-20, Afturelding jafnar en Svenni skorar aftur með þrumuskoti. Þá fer allt í vaskinn hjá Víkingum og Afturelding skorar fimm mörk í röð án þess að Víkingum tækist að svara. Þegar innan við tvær mínútur eru eftir fara Víkingar að leika maður á mann og ná að skora tvö mörk. Það voru Siggi og Jói sem minnkuðu muninn en Afurelding fór með sigur af hólmi 25-23 og tvö dýrmæt stig með heim. Það er engin  skömm að tapa fyrir góðu liði sem leikur vel en það er ekki gott að tapa fyrir liði sem leikur illa með þvi að leika enn verr. Leikur Víkinga var afar köflóttur í leiknum. Stundum var ekki heil brú í leik liðsins en svo hrökk það í gang annað slagið og náði að vinna upp gott forskot Aftureldingar. Sóknin var oft á tíðum ómarkviss og of bráðlát. Markvarslan var ekki góð og hefði að ósekju mátt skipta Halldóri inn á í seinni hálfleik. Hann hefur sýnt það að hann getur axlað þá ábyrgð sem nauðsynleg er til að leika meistaraflokksleiki. Davíð var drjúgur í markaskorun og eins stóð Jóí fyrir sínu. Skytturnar komu varla skoti á markið í fyrri hálfleik en það batnaði heldur í þeim seinni. Með tapi í þessum leik hafa möguleikar Víkinga minnkað á að blanda sér í baráttu efstu liða.

Það getur þó breyst með því að taka sig saman í andlitinu og taka hvern leik héðan í frá eins og þar sé um að ræða úrslitaleik.
Þessir skoruðu mörkin:
Davíð-7
Gummi-2
Hjálmar-1
Benni-1
Siggi-3
Kiddi-1
Jói-3
Svenni-4
Þröstur-1