Selfoss vann öruggan sigur í Víkinni
21.2.2010


Víkingar hófu leikinn af krafti og komust í 2-0 með mörkum frá Davíð og Svenna. Selfoss skorar en Davíð kemur Víkingum í 3-1. Selfoss jafnar en Hreiðar skorar fjórða mark Víkinga. Liðin skiptast svo á að skora en Víkingar eru skrefinu á undan með tveimur mörkum frá Þresti, og einu frá hvorum fyrir sig, Davíð og Svenna. Staðan er 8-7 þegar Hjálmar kemur Víkingum í 9-7. Davíð heldur tveggja marka forystu í stöðunni 10-8 og Hjálmar skorar 11-9. Þá fer allt í baklás hjá Víkingum og Selfoss skorar fjögur mörk í röð og liðið fer í hálfleik með tveggja marka forystu, 11-13.


Víkingar byrja vel í seinni hálfleik. Davíð skorar úr víti og Gummi minnkar muninn í eitt mark. Liðin skiptast svo á að skora og munurinn er eitt eða tvö mörk. Þröstur skorar tvö og Davíð tvö og staðan er 17-18. Þá skorar Selfoss tvö mörk en Svenni minkar muninn í 18-20. Selfoss skorar aftur tvö mörk og Hreiðar minnkar muninn og Svenni skorar annað mark. Liðin skiptast svo á um að skora en lítið er varið. Davíð skorar tvö mörk og Svenni þrjú og staðan er 25-27 þegar um fimm mínútur eru eftir af leiknum. Þá skora Selfyssingar þrjú mörk í röð og gera út um leikinn. Víkingar klóra í bakkann með tveimur mörkum frá Hreiðari og Þresti en leikurinn endar með öruggum sigri Selfyssinga 27-32. Víkingar léku heilt yfir ekki illa í leiknum en vantaði herslumuninn til að ná undirtökum í honum þegar tækifæri gafst framan af leiknum. Miklu munaði að markvarslan var ekki góð. Bjössi hefur oftast leikið betur og varði fáa bolta. Halldór kom inn á og varði eitt víti en annars hefur hann oft leikið betur. Vörnin var ekki sérstaklega þétt. Sérstaklega fékk Ragnar, besti maður Selfyssinga, að leika lausum hala í fyrri hálfleik þegar hann nær því skoraði að vild og hélt Selfossliðinu inni í leiknum. Davíð stóð sig vel í sókninni og sýndi mikið öryggi í vítum. Svenni átti einnig góðan leik


og skoraði mörk með miklum þrumufleygum.
Þjálfarar Víkinga eru ekki þekktir fyrir að vera með hávaða á hliðarlínunni en þó bar það til að Guðmundur fékk tvær mínútur í leiknum fyrir óþarfa athugasemdir við dómgæslu. Miðað við orðbragð ákveðinna þjálfara þá myndu ansi margir fjúka útaf í sumum leikjum miðað við þetta ef samræmi væri í dómgæslu varðandi hegðan þjálfara á bekknum. Vörn Selfoss gekk ansi hart fram gagnvart Hjálmari í fyrri hálfleik og var bolurinn tættur utan af honum. Það virðist sem svo að það leyfist oft meir gegn honum en öðrum sem eru burðaminni vegna þess hve hann er sterkur.
Þessir skoruðu mörkin:
Davíð-9
Svenni-7
Hreiðar-3
Þröstur-5
Hjálmar-2
Gummi-1