Góður sigur hjá 2. flokk á Haukum
10.3.2010


Haukar mættu með sitt besta lið til leiks en þeir eru með nokkra hávöxnustu leikmenn 2. flokks. Þrir þeirra eru um og yfir tveir metrar á hæð. Benni, sem er hávaxnastur Víkinga lá veikur heima svo þar var skarð fyrir skildi. Haukar skoruðu fyrsta markið en Hjálmar jafnaði að bragði. Það var forsmekkurinn að því sem koma skyldi en hann átti síðan eftir að skila boltanum nokkrum sinnum í netið í leiknum. Jón kom Víkingum í 2-1, Hjálmar bætti öðru marki við og Jón enn einu og staðan var 4-1 fyrir Víkinga. Haukar skoruðu en Jói svaraði. Hjálmar bætti enn einu við og Jói síðan öðru og staðan var 7-2 fyrir Víkinga. Haukar skoruðu tvö mörk en Hjálmar jók munin á nýjan leik. Jói skoraði úr víti og Hjálmar skoraði úr hraðaupphlaupi og staðan var 10-4. Ótrúleg byrjun hjá Víkingum sem spiluðu mjög fína og massíva vörn, sóknin gekk vel upp og Halldór traustur þar fyrir aftan. Haukar skoruðu 10-5 en Jói jók forskotið og Hemmi bætti svo öðru við með þrumuskoti. Hjálmar kom Víkingum í 13-6 og Jói í 14-7. Sibbi skoraði úr víti og staðan var 15-9 en Haukar skoruðu tvö síðustu mörk hálfleiksins og Víkingar leiddu í hléi með 15-11.


Jón var rekinn af leikvelli rétt fyrir leikhlé og síðan fylgdi ótrúleg hrina brottrekstra hjá Víkingum og þeir spiluðu með fjóra útimenn að mestu fyrstu 5 mínútur seinni hálfleiks. Haukar söxuðu á forskot Víkinga og minnkuðu muninn í 18-16. Hemmi hafði þá skorað tvö mörk og Sibbi eitt úr víti. Þegar Víkingar náðu að fullmanna lið sitt þá dró strax sundur. Hjálmar skoraði 19-16 og 20-16, Hemmi bætti marki við og Víkingar höfðu náð fimm marka forskoti 21-16. Haukar skoruðu tvö mörk en Hjálmar skoraði 22-18. Sibbi skoraði úr víti og Jón bætti öðru marki við og staðan var 24-20. Haukar minnkuðu muninn í tvö mörk en Hjálmar skoraði 25-22, Sibbi 26-22 og Hjálmar 27-23. Víkingar skoruðu svo tvö síðustu mörk leiksins, Jón með föstu skoti og Guðmundur innsiglaði góðan leik Víkinga með því að skora úr horninu hjá meistaraflokksmarkmanni Hauka. Lokastaðan var 29-23.


Víkingar létu ekki á sig fá þótt Benna vantaði en komu vel stemmdir til leiks og spiluðu fínan leik frá upphafi til enda. Vörnin vann vel allan leikinn og hélt hávöxnum skyttum Hauka í skefjum. Hjálmar átti stórleik, skoraði 10 mörk og vann nokkur víti. Víkingum gekk mjög vel að spila inn á hann sem gerði sóknarleikinn fjölbreyttari og öflugri. Hemmi átti fínan leik, bæði í vörn að venju en einnig skoraði hann fimm mörk með góðum uppstökkum. Halldór átti fínan leik og varði 22 skot. Það verður að segjast ens og er að það er ekkert sérstaklega gaman að heyra áhangendur gestanna hafa undirtökin á áhorfendabekkjunum í leik eins og þessum. Það er góð skemmtun að horfa á strákana spila og þeir þurfa á stuðningi áhorfenda að halda eins og aðrir. Þeir hafa sýnt það í vetur að þeir eiga alveg skilið að það mæti fleiri heimamenn á leiki í Víkinni en raun ber vitni.
Þessir skoruðu mörkin:
Hjálmar-10
Jón-4
Jói-5
Hemmi-5
Sibbi-4
Guiðmundur-1