2. fl. karla
10.3.2010

Góður sigur hjá 2. flokk á Haukum

Víkingar fengu Hauka í heimsókn á þriðjudagskvöldið. Liðin voru með jafnmörg stig fyrir leik kvöldsins. Haukar höfðu ekki tapað leik í deildinni frá því Víkingur sigraði þá örugglega í Hafnarfirði í nóvember á meðan Víkingur hafði tapað nokkrum stigum gegn liðum í neðri hluta deildarinnar. Bæði lið ætluðu sér sigur í leiknum til að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. Víkingur þurfti á stigi að halda til að tryggja sér örugglega sæti. Lesa frétt »
3.3.2010

Selfoss sigraði Víking 2. fl. kk í Víkinni

Víkingur og Selfoss mættust í 1. deild 2. fl. kk í Víkinni á þriðjudagskvöldið. Víkingar voru efstir í deildinni fyrir leikinn en Selfoss nokkru stigum neðar. Selfoss hafði unnið Víkinga í tvígang fyrr í vetur svo vitað var að þeir yrðu erfiðir andstæðingar. Á hinn bóginn hafði Selfyssingum gengið illa á útivelli í vetur. Það var því útlit fyrir spennandi leik þar sem ekkert yrði gefið eftir.

Lesa frétt »
23.2.2010

Víkingur vann Val á Hlíðarenda í 2. fl. kk.

Víkingar spiluðu við Val að Hlíðarenda í 2. fl. kk í handbolta á þriðjudagskvöldið. Val hefur ekki gengið vel í vetur og er neðst í 1. deildinni á meðan Víkingur er meðal efstu liða. Það er hins vegar enginn leikur unninn fyrirfram og það verður að hafa fyrir öllu í þessu efni. Víkingar lentu í ströggli í tveimur síðustu leikjum gegn liðum sem voru neðarlega í deildinni svo það var ekkert gefið eftir. Lesa frétt »
16.2.2010

HK náði jafntefli í Víkinni

HK sótti 2. fl. kk í handbolta heim í Víkina á þriðjudagskvöld. Víkingar voru nokkru ofar í deildinni. Víkingar unnu fyrri leik liðanna í HK salnum fyrr í vetur eftir að hafa lent mjög illa undir framan af leiknum. Það var því ekkert á vísan að róa í þessum leik enda þótt allmörg stig skyldu liðin að í töflunni. Lesa frétt »
13.2.2010

ÍR sótti sigur í Víkina

ÍR ingar sóttu 2. flokk kk í handbolta heim í Víkina á fimmtudagskvöldið. Víkingar höfðu einungis tapað fjórum stigum í deildinni fyrir þennan leik en ÍR hafði einungis náð í fimm stig. Víkingar unnu fyrri leik liðanna með miklum mun  snemma vetrar: Mikilvægt var fyrir Víkinga að fara með sigur af hólmi í leiknum og styrkja þannig enn fremkar stöðu sína á toppi deildarinnar. Á hinn bóginn hafði verið mikið álag á Víkingum dagana á undan. Þetta var þriðji leikur 2. flokks á átta dögum og sumir höfðu þar að auki leikið með meistaraflokki í tveimur leikjum til viðbótar á sama tíma. Lesa frétt »
6.2.2010

Sætur en erfiður sigur í Víkinni


Víkingar fengu Akureyringa í heimsókn í Víkina laugardaginn 6. febrúar í 1. deildar keppni 2. fl. kk. Liðin voru á áþekkum stað í deildinni en Akureyringar höfðu tapað einu stigi minna en Víkingar. Víkingar byrjuðu illa í haust á meðan Akureyringar byrjuðu mjög vel. Þeir töpuðu svo síðasta leik sínum gegn Haukum sem Víkingar unnu af öryggi fyrir jólin. Það var því búist við jöfnum og spennandi leik. Lesa frétt »
4.2.2010

Naumur en sætur sigur í Krikanum

2. fl. Víkings sóttu FH heim í Krikann á fimmtudagskvöldið. FHingar voru einu stigi ofar en Víkingar í töflunni en höfðu spilað fleiri leiki. FH vann nauman sigur í Víkinni fyrr í vetur svo Víkingar hugðu á hefndir. FHingar eru yfirleitt lægri í loftinu en Víkingar en þeir eru snöggir og vel spilandi svo það þýðir ekki að vanmeta þá.  

Lesa frétt »
23.1.2010

Stórt tap hjá Víkingum gegn Selfossi

Víkingar tóku á móti Selfossi í átta liða úrslitum í bikarkeppni 2. fl. kk í handknattleik í dag, laugardaginn 23. janúar. Víkingar hófu leikin með miklum látum og skoruðu hvert markið á fætur öðru í upphafi leiksins en Selfyssingar náðu sér engan vegin á strik. Eftir fjórtán mínútna leik var staðan 6-2 fyrir Víkingum. Strákarnir spiluðu sterka vörn og skoruðu góð mörk. Þá fór Selfoss heldur að taka við sér. Jón skoraði í stöðunni 7-3 og Jói skoraði gott mark og kom Víkingum í 8-5. Lesa frétt »
22.1.2010

Bikarleikur hjá 2. fl. kk. í handknattleik

Víkingar taka á móti Selfyssingum í bikarkeppni 2. fl. kk í handknattleik í Víkinni laugardaginn 23. janúar kl. 12:00. Leikurinn er liður í 8 liða úrslitum bikarkeppninnar en Víkingar sigruðu Aftureldingu í fyrstu umferð hennar. Víkingar og Selfoss hafa ekki spilað saman í vetur síðan í fyrstu umferð deildarinnar. Þá sigruðu Selfyssingar með miklum mun svo Víkingar eiga harma að hefna.
Lesa frétt »
15.1.2010

2. fl. Víkings í handbolta byrjar árið með góðum sigri

2. fl. Víkinga í handbolta spilaði sinn fyrsta leik í deildinni á nýju ári í Víkinni föstudagskvöldið 15. jan. Mótherjarnir voru Valur/Þróttur. Nokkrar breytingar voru á liðinu frá því fyrir áramót. Gestur er farinn erlendis um skeið, Ingólfur og Sibbi voru forfallaðir en þrír nýjir menn eru komnir til liðsins. Það var því nokkur eftirvænting að sjá hvernig liðið næði saman gegn hávöxnu liði Val/Þróttar.

Lesa frétt »