lesa meira

Karatedeild Víkings Íslandsmeistari barna og unglinga í Kata 2009

Lið Víkings sigraði með yfirburðum félagsbikarinn á Íslandsmeistaramóti barna og unglinga í Kata sem haldið var sunnudaginn 15. febrúar í Smáranum í Kópavogi.  Víkingar fóru heim með 7 gullverðlaun, 5 silfurverðlaun og 3 bronsverðlaun. 


 Í Kata 8 ára og yngri varð Una Mist Óðinsdóttir Íslandsmeistari, en í öðru sæti varð Iðunn de Bustos. 

Í Kata 9 ára varð Emil Áki Ægisson Íslandsmeistari og bronsið hlaut Atli James Justinsson Rebbeck.

Í Kata 10 ára fékk Þorvaldur S. Sigurðsson bronsverðlaun.

Í Kata 11 ára fékk Díana Katrín Þorsteinsdóttir bronsverðlaun. 

Í Kata stúlkna 12 ára varð Unnur Lilja Þórðardóttir Íslandsmeistari og Ísabella Montazeri fékk silfur.

Í Kata stúlkna 13 ára fékk Katrín Hrefna Demian silfurverðlaun. 

Í Kata drengja 13 ára fékk Harald Sigurvin Þorsteinsson silfur.

Í Kata stúlkna 14 ára varð Nína Ingólfsdóttir Íslandsmeistari.

Í hópkata yngri en 9 ára urðu Emil Áki Ægisson, Iðunn de Bustos og Una Mist Óðinsdóttir Íslandsmeistarar. 

Í hópkata 10-11 ára urðu Díana Katrín Þorsteinsdóttir, Karen Tinna Demian og Þorvaldur S. Sigurðsson Íslandsmeistarar. 

Í hópkata 12-13 ára urðu Sindri Pétursson, Askur Tómas Óðinsson og Ísabella Montazeri Íslandsmeistarar. 

Í hópkata 14-15 ára fengu Pétur Rafn Bryde, Nína Ingólfsdóttir og Einar Valur Erlingsson silfurverðlaun.

 

Við óskum keppendum Víkings innilega til hamingju með þennan frábæra árangur.

 

Mikill uppgangur hefur verið hjá Karatedeild Víkings og yfir 20 börn bættust í byrjendahóp eftir áramót.  Til stendur að bjóða upp á byrjendaæfingar fyrir 13-20 ára og verður það nánar kynnt á heimasíðu. 

 

Stjórn Karatedeildar