Árshátíð karatefélaganna
Árshátíð karatefélaganna
Árshátíð verður haldin laugardaginn 28. mars á skemmtistaðnum Players í Kópavogi. Öllum karateiðkendum 18 ára og eldri er frjálst að koma og skiptir þá engu í hvaða félagi menn og konur æfa, makar einnig velkomnir. Gert er ráð fyrir því að hvert karatefélag komi með skemmtiatriði. Miðaverð er aðeins 4.000 kr. *
Boðið verður upp á:
- Rjómalagaða sveppasúpu
- Lambaprimesteik með kryddjurtar-rauðvínssósu
- Rauðvínsglas
Veislustjóri Kristján Ó. Davíðsson, KDH sem er helst frægur þessa dagana fyrir að leggja hart að sér að verða léttari svo við eigum von á góðu!
Frítt á dansleik á eftir með hljómsveitinni Moonboots sem er að verða ein vinsælasta ballsveitin. Einnig er mögulegt að bætast í hópinn frá kl. 22:00 en þá kostar 1.500 kr. inn (greitt á staðnum)
Ekki má gleyma því að félagsskapurinn er einstakur og ekki á hverjum degi sem hann býðst.
ÞEMA kvöldsins er Mexikó í öllu sínu veldi og verða veitt verðlaun bæði í karla- og kvennaflokki fyrir það. Einnig verða veitt verðlaun fyrir eitt og annað!
* Greiðsla á miða staðfestir þátttöku! Greiða þarf eigi síðar en 26. mars kl. 13:00 inn á reikning 0537-26-502679 kt. 590297-2679
Athugið áður auglýst árshátíð á Facebook hefur breyst í ofangreint
http://www.facebook.com/note.php?created&suggest¬e_id=56609815769&id#/event.php?eid=72448097736&ref=ts