Víkingur Íslandsmeistari í kumite
Víkingur Íslandsmeistari í kumite
Íslandsmótið í kumite í fullorðinna flokki fór fram um síðustu helgi, en kumite er bardagahluti karate. Alls voru 28 keppendur skráðir á mótið.
Keppt var í sjö flokkum og sigruðu Víkingar í fimm flokkum.
Diego Björn Valencia sigraði í +85 kílogramma og opnum flokki. Helena Monaceri sigraði í +61 kílóa flokki. Síðan vann Víkingur liðakeppni þar sem þrír keppa gegna þremur og svo sigraði Víkingur í keppni félagssliða. Frábær árangur hjá karatedeild Víkings.