Upphitun: Víkingur - KR
Guðjón Guðmundsson
Hvað? Hvar? Hvenær? Reykjavíkurmót,
úrslitaleikur. Víkingur-KR, sunnudagurinn 7. mars klukkan 20.00
Síðustu viðureignir:
Víkingur og KR hafa spilað
marga leiki á undanförnum árum. Ekki er langt síðan liðin spiluðu
síðast, en það var í A riðli reykjavíkurmótsins 23. janúar síðastliðin.
Þeim leik lauk með jafntefli 3-3. Á síðustu tíu árum hafa liðin spilað
19 leiki og hafa KR-ingar sigrað í tíu leikjum en Víkingur í fjórum,
fimm leikjum hefur lokið með jafntefli.
Nánar á vikingur.net