2. fl. HK/Víkings stóð fyrir hraðmóti í Fífunni á sunnudag. Svona rétt til að ýta nýju tímabili úr vör.
2. fl. kvenna HK/Víkings lék gegn Sindra á gervigrasvellinum í Víkinni á sunnudag. Niðurstaðan varð öruggur 4-1 sigur.
2. fl. kvenna HK/Víkings mætti Fjölni í fyrsta leiknum í Íslandsmótinu í Fagralundi á Skírdag. Lauk leiknum með markalausu jafntefli.
2. flokkur kvenna HK/Víkings átti góðu láni að fagna í fyrsta leik íslandsmótsins þegar landað var sigri gegn Keflavík á gervigrasvellinum við Kórinn á sunnudag. Leiknum lauk 3-2.