Knattspyrna, æfingagjöld 2010
Æfingagjöld knattspyrnudeildar fyrir
2010 verða óbreytt frá árinu 2009 og gildir einu hvort allt árið er gert upp í
einu lagi eða árinu skipt í tvo áfanga (janúar-september og október-desember).
Í fyrra var veittur lítilsháttar afsláttur ef greitt var fyrir 1. mars en
ákveðið er að falla nú frá slíku fyrirkomulagi í ljósi reynslunnar. Tiltölulega
fáir nýttu sér afsláttinn með staðgreiðslu árgjalds fyrir settan tíma en þessi
sérkjör gerðu hins vegar innheimtuna flóknari en svo að eftirsóknarvert væri í
reynd að bjóða þau.
Fjárstuðningur Reykjavíkurborgar
samkvæmt Frístundakorti er óbreyttur frá í fyrra og mjög mikilvægt fyrir
rekstur Víkings að foreldrar úthluti félaginu frístundastyrknum nú þegar svo
unnt sé til dæmis að greiða þjálfurum laun sín á réttum tíma. Við heitum á
foreldra að vera skilvísir og ganga sem fyrst frá æfingagjöldunum til að
reksturinn gangi eðlilega fyrir sig og komist verði hjá eftirrekstri og
ítrekun. Innheimtan er að miklu leyti sjálfboðaliðastarf eins og svo margt
annað á vettvangi Víkings.
·
Gjalddagi fyrra
tímabils (janúar-september) er 1. apríl. Þeir sem ætla að nýta frístundastyrk
Reykjavíkurborgar upp í æfingagjaldið eru vinsamlega beðnir um að millifæra
hann strax og eigi síðar en 15. febrúar. Greiðsluseðill verður svo sendur fyrir
eftirstöðvum í byrjun mars.
·
Gjalddagi seinni
tímabils (október-desember) er 15. október.
|
Flokkur
|
Árgjald
|
Gjald fyrir
janúar-september
|
Gjald fyrir
október-desember
|
Sumargjald,
júní-september
|
|
|
Kr.
|
Kr.
|
Kr.
|
Kr.
|
|
2.-5.flokkur
|
54.000
|
40.500
|
13.500
|
20.000
|
|
6. flokkur
|
48.000
|
36.000
|
12.000
|
18.000
|
|
7. flokkur
|
42.000
|
31.500
|
10.500
|
16.000
|
|
8. flokkur
|
25.000
|
18.000
|
7.000
|
9.000
|
Víkingur veitir sem fyrr systkina-
og fjölgreinaafslátt. Afsláttur er 10% ef eitt systkin er að æfa hjá Víkingi,
20% ef tvö systkin æfa o.s.frv. Við bætist 10% afsláttur ef iðkandi æfir aðra
íþrótt hjá Víkingi. Afsláttur verður þó aldrei meiri en 30%. Dæmi:
Iðkandi er
í 7. flokki, æfir einnig handbolta og á eitt systkin sem æfir hjá Víkingi. Fullt
árgjald er 42.000 kr. en afsláttur er 20% eða 8.400 kr. (10% vegna annarrar
íþróttar og 10% vegna systkinis). Iðkandi greiðir þá 33.600 kr. í síðasta lagi
1. apríl.
Ef greitt
er fyrir tímabilið janúar-september er fullt gjald 31.500 kr. og 20% afsláttur
frá því er 6.300. Iðkandi greiðir þá 25.200 kr. fyrir 1. apríl. Hann fær einnig
20% afslátt af haustgjaldinu eða 2.100 kr. Hann greiðir þá 8.400 kr. (10.500
kr. - 2.100 kr.) fyrir 15. október.
Gjöldin má greiða með því að
millifæra frístundastyrk borgarinnar, millifæra af eigin reikningi í heimabanka
eða með skuldfærslu á kreditkorti.
Frístundastyrkur Reykjavíkurborgar
fyrir árið 2010 er 25.000 krónur á barn fyrir öll börn fædd á árunum 1992-2004
með lögheimili í Reykjavík. Úthlutun hans fer fram á vef borgarinnar rvk.is, sjá
hér: https://rafraen.reykjavik.is/pages/ . Ef aðgangsorð eru gleymd má fá þau
send tafarlaust í tölvupósti frá vefnum. Þess
ber að geta að búið er að skrá alla núverandi iðkendur inn á Rafræna Reykjavík
og er æfingagjald skráð 25.000 kr. hjá öllum eða sem nemur hámarksstyrk. Það er
til þess að fólk geti úthlutað allt að hámarksstyrk en raunveruleg krafa ræðst
svo af ýmsum breytum sem ekki eru allar þekktar þegar þetta er ritað svo sem
hver ástundun iðkanda verður, ástundun systkina, fyrri skuld eða inneign
o.s.frv.
·
Mismun á æfingagjaldi
sem greiða skal og úthlutun frístundastyrks má gera upp með millifærslu á
eftirfarandi reikning:
0323-26-018888
Kt.
700693-2529
Kr.
_________
Netfang: oliola@vikingur.is
Skýring:
<Skírnarnafn iðkanda, x.fl. kk/kvk>
Einnig má standa skil á mismun með
því að hafa samband við skrifstofu Víkings og ganga frá kreditkortagreiðslu/m.
Það skal tekið fram að ef barn eða
ungmenni hættir iðkun íþrótta hjá Víkingi á viðkomandi rétt á endurgreiðslu
æfingagjalds umfram frístundastyrkinn og þann tíma sem iðkandi
hefur stundað æfingar. Barna- og unglingaráð tekur við slíkum umsóknum og
afgreiðir þær. Reynslutími nýrra iðkenda er einn mánuður. Haldi barnið ekki
áfram að reynslutíma loknum þarf ekki að greiða æfingagjald.
Við endurtökum í lokin:
Mikilvægt
er fyrir starfið að greitt sé sem fyrst og sér í lagi að frístundastyrk sé
úthlutað fyrir 15. febrúar. Það hefur einnig mikið að segja til að útsendir
greiðsluseðlar og/eða kröfur á eftirstöðvar í heimabanka í byrjun mars verði
réttar. Við biðjum ykkur því að hjálpa okkur við að gera innheimtuna bæði
skjóta og skilvirka.
Bestu kveðjur frá Barna-
og UnglingaRáði
ÁFRAM VÍKINGUR !