lesa meira

Sex Víkingar valdir á úrtaksæfingar U16 og U17 í knattspyrnu um næstu helgi.

26.1.2010
Gunnar Guðmundsson þjálfari U17 og U16 ára landsliðsins í knattspyrnu hefur valið þá Aron Elís Þrándarson,Hlyn Snæ Hilmarsson, Jón Rey Jóhannsson og Patrik Snæ Atlason  á úrtaksæfingar U17 um næstu helgi. Gunnar valdi einnig þá Björn Jón Þorsson og Steinar Ísaksson til að æfa með U16 sem æfir einnig um næstu helgi. Allt eru þetta leikmenn 3fl. karla en þjálfari þess flokks er Gunnar Örn Gunnarsson.