lesa meira

Svava skoraði í fyrsta leiknum

23.1.2010

HK/Víkingur mætti Þrótti R. í öðrum leik sínum í Reykjavíkurmóti meistaraflokks kvenna í Egilshöllinni í kvöld. Þróttarar höfðu betur, 3:1, eftir að staðan var 0:0 í hálfleik.

Svava Björk Hölludóttir, 17 ára, sem er nýkomin til liðs við HK/Víking frá ÍA, skoraði markið, í sínum fyrsta leik með liðinu. Sólveig Þórarinsdóttir og Arna Björk Björgvinsdóttir, báðar nýkomnar frá KR, léku líka báðar sinn fyrsta leik fyrir HK/Víking.

Þá lék Heiður Loftsdóttir, ein sú leikjahæsta hjá HK/Víkingi frá upphafi, sinn fyrsta leik síðan 2008 en hún tók sér frí á síðasta ári. Sjá nánar: Leikmenn/markaskor 2010.

Liðið var þannig skipað:

Mark: Regína Jónsdóttir.
Vörn: Arndís Rós Stefánsdóttir, Ingibjörg Björnsdóttir, Arna Kristjánsdóttir, Sif Ólafsdóttir (Arna Björk Björgvinsdóttir 46.)
Miðja: Valgerður Tryggvadóttir (Hildigunnur Sól Eldjárn  80.), Sólveig Þórarinsdóttir (Svava Björk Hölludóttir 70.), Heiður Loftsdóttir (Sólrún Sigvaldadóttir 46.)
Sókn: Anna Daníelsdóttir (Elísabeth Ásgeirsdóttir 35.), Guðrún Hermannsdóttir, Ingibjörg Sigvaldadóttir (Guðný K. Magnúsdóttir 46.)

Fyrri hálfleikur var jafn og staðan í leikhléi 0:0. Það brá fyrir ágætum spilaköflum hjá HK/Víkingsstúlkum í hálfleiknum.

Í seinni hálfleik hélt baráttan áfram. Þróttur skoraði eftir hornspyrnu og komst svo í 2:0 stuttu síðar.

Lið HK/Víkings færði sig framar síðasta korterið og Svava skoraði með góðu skoti eftir snarpa sókn, 2:1. Síðustu mínúturnar voru í járnum en Þróttarstúlkur náðu að skora þriðja markið og tryggja sér sigurinn í blálokin.

"Þetta var hörkuleikur gegn fínu Þróttarliði. Þær eru væntanlega með eitt af þremur sterkustu liðum 1. deildarinnar í ár þannig að ég er sáttur við hve vel við náðum að standa í þeim í kvöld. Við erum að bæta spilið hjá okkur og þeir fjórir leikmenn sem bættust við síðan síðast stóðu fyrir sínu," sagði Sigurður Víðisson þjálfari HK/Víkings.

* Þrjár sem léku, Heiður, Arna og Valgerður, eru í hópi þeirra leikjahæstu hjá meistaraflokki kvenna frá upphafi. Sjá nánar: Tölfræði mfl. kvenna.

* Þetta var 25. mótsleikur liðanna í meistaraflokki kvenna. HK/Víkingur hefur unnið 12 leiki, Þróttur 11 en 2 hafa endað með jafntefli. Sjá nánar: Mótherjar.

* Næsti leikur er gegn Fylki í Egilshöllinni laugardaginn 30. janúar. Sjá nánar: Leikir mfl.kv. 2010.

Mynd 1: Svava Björk hafði ástæðu til að brosa yfir góðri frammistöðu og góðu marki.
Mynd 2: Regína Jónsdóttir átti enn stórleik í markinu, varði nokkrum sinnum stórvel ein á móti sóknarmanni auk þess sem hún greip vel inn í með úthlaupum.
Mynd 3: Arna Kristjánsdóttir hafði í næg horn að líta í vörninni en brá sér fram á miðjuna og lagði grunninn að markinu sem Svava skoraði.
Mynd 4: Ingibjörg Sigvaldadóttir átti ágætan leik í fyrri hálfleik.

Frétt af heimasíðu HK