lesa meira

Þrjár nýjar í meistaraflokki kvenna

23.1.2010

Sólveig Þórarinsdóttir er 25 ára tengiliður sem kemur úr KR þar sem hún lék með meistaraflokki frá 1999 til 2004 og vann þrjá Íslandsmeistaratitla og tvo bikarmeistaratitla. Sólveig hefur spilað með landsliðum Íslands í öllum aldursflokkum og lék sinn fyrsta og eina A-landsleik árið 2004, gegn Skotum. Hún varð að hætta í fótboltanum vegna slæmra bakmeiðsla síðar það ár en er nú búin að taka fram skóna á ný.

Svava Björk Hölludóttir kemur frá Akranesi en hún er 17 ára framherji og spilaði 10 leiki með ÍA í 1. deildinni síðasta sumar. Svava fer vel af stað því hún skoraði í fyrsta leiknum gegn Þrótti í gærkvöld. Hún er að sjálfsögðu einnig gjaldgeng í 2. flokki.

Arna Björk Björgvinsdóttir kemur úr KR en hún er 19 ára tengiliður sem hefur spilað með yngri flokkum Vesturbæjarfélagsins og gekk uppúr 2. flokki síðasta haust.

Mynd: Sólveig í leiknum gegn Þrótti í gærkvöld þar sem hún sýndi skemmtilega takta, flink og drífandi fyrir aðrar í liðinu.

Frétt af heimasíðu HK