lesa meira

Vikingur og KR skildu jöfn í fjörugum leik í Egilshöll

24.1.2010
Heimild; fótbolti.net

Reykjavíkurmótið: Baldur tryggði KR stig gegn Víkingi

Víkingur 3-3 KR
1-0 Helgi Sigurðsson
2-0 Daníel Hjaltason
2-1 Gunnar Kristjánsson
2-2 Gunnar Kristjánsson
3-2 Elvar Freyr Arnþórsson
3-3 Baldur Sigurðsson

Síðari leik dagsins í Reykjavíkurmótinu var að ljúka en þar skildu Víkingur og KR jöfn í fjörugum leik í Egilshöl.

Helgi Sigurðsson kom Víkingum yfir með skoti utan vítateigs sem fór í Grétar Sigfinn Sigurðarson og þaðan í banana yfir Þórð Ingason í marki KR.

Daníel Hjaltason bætti svo öðru marki við eftir góðan undirbúning Helga sem vann boltann,gaf fyrir markið á Daníel sem skoraði með lærunum. Engu munaði að Helgi skoraði svo þriðja markið ekki löngu síðar en þá varði Þórður vel er Helgi komst í dauðafæri.


Staðan í hálfleik 2-0 fyrir Víking og þegar um klukkustund var liðin slapp Elvar Freyr Arnþórsson sem hafði komið inná sem varamaður fyrir Helga einn í gegn og stakk sér framhjá Þórði sem braut á honum og Ársæll dómari dæmdi aukaspyrnu og vísaði Þórði af velli.

Við þetta kom mikill fítónskraftur í KR-inga sem skoruðu tvö mörk með stuttu millibili, bæði mörkin skoraði Gunnar Kristjánsson.

KR-ingar fækkuðu svo í vörninni þrátt fyrir að vera manni færri og freistuðu þess að tryggja sér sigur í leiknum. Það varð reyndar til þess að Víkingur náðin að skora mark úr skyndisókn. Walter Hjaltested sendi boltann þá fyrir á Elvar Freyr sem skallaði í netið.

Héldu þá margir Víkingar að björninn væri unninn en þegar komið var fram í uppbótartíma náði Baldur Sigurðsson að jafna metin með skalla í fjær hornið.