Stoltur af síðustu 40 mínútunum hjá okkur
31.1.2010
Í seinni hálfleik tóku HK/Víkingsstúlkur sig heldur betur saman í andlitinu, léku mun skipulegar og börðust af miklum krafti allan seinni hálfleikinn. Þær fengu á sig eitt mark eftir þrjár mínútur en síðan ekki söguna meir og lokatölur urðu 11:0 fyrir Fylki.
Þar munaði ekki síst um að Sólveig Þórarinsdóttir fór af miðjunni í vörnina og stjórnaði liðinu þaðan af mikilli festu í síðari hálfleiknum. Eftir allar þær breytingar sem hafa orðið á liðinu í vetur er ljóst að hún er mikill og góður liðsauki fyrir kornungt lið HK/Víkings.
"Þetta Fylkislið hjá Bubba (Birni þjálfara Fylkis) hefur tekið stórstígum framförum síðustu ár og er orðið eitt af þremur bestu liðum landsins. Þær voru frábærar í dag og gjörsamlega réðu lögum og lofum á vellinum. Við sáum ekki til sólar í fyrri hálfleik en í þeim seinni náðum við að sýna okkar rétta andlit og þá baráttu sem þarf. Ég er stoltur af síðustu fjörutíu mínútunum hjá okkur, þann tíma héldum við hreinu," sagði Sigurður Víðisson þjálfari HK/Víkings.
Lið HK/Víkings:
Mark: Regína Jónsdóttir.
Vörn: Arndís R. Stefánsdóttir, Heiður Loftsdóttir, Ingibjörg Björnsdóttir, Elísabeth Ásgeirsdóttir.
Miðja: Sólveig Þórarinsdóttir, Valgerður Tryggvadóttir, Sólrún Sigvaldadóttir (Berglind Anna Víðisdóttir 53.), Ingibjörg Sigvaldadóttir (Guðný K. Magnúsdóttir 46.), Arna Björk Björgvinsdóttir.
Sókn: Guðrún Hermannsdóttir.
* Nokkur forföll voru að þessu sinni en þrettán leikmenn HK/Víkings tóku þátt í leiknum. Sjá nánar: Leikmenn/markaskor 2010.
Valgerður lék sinn 70. leik með meistaraflokki og er sú 17. frá upphafi sem nær þeim áfanga. Sjá nánar: Tölfræði mfl. kvenna.
Þetta var næstsíðasti leikurinn í Reykjavíkurmótinu en sá síðasti er gegn Val föstudagskvöldið 5. febrúar kl. 21. Sjá nánar: Leikir mfl.kv. 2010.
Þetta var 13. mótsleikur liðanna frá upphafi. HK/Víkingur hefur unnið 5 leiki, Fylkir hefur unnið 7 og einn hefur endað með jafntefli. Sjá nánar: Mótherjar.
Frétt af heimsaíðu HK