Vörðust vel gegn firnasterku Valsliði
6.2.2010
Íslands-
og bikarmeistarar Vals sigruðu HK/Víking eins og vænta mátti þegar
liðin mættust í Reykjavíkurmóti meistaraflokks kvenna í Egilshöllinni í
gærkvöld. Lokatölur urðu 8:0 eftir að staðan var 4:0 í hálfleik.
Hið
firnasterka Valslið réð ferðinni frá fyrstu mínútu en lið HK/Víkings
hélt áfram með þá varnarvinnu sem náðist í gang í seinni hálfleiknum
gegn Fylki á dögunum og hélt erfiðum mótherjum í skefjum eftir megni.
Lið HK/Víkings:
Mark: Regína Jónsdóttir.
Vörn:
Ingibjörg Björnsdóttir, Sólveig Þórarinsdóttir, Berglind Anna
Víðisdóttir, Ólöf Guðrún Baldursdóttir (Hrönn Þorsteinsdóttir 55.)
Miðja: Heiður Loftsdóttir, Valgerður Tryggvadóttir (Natalía Reynisdóttir 43.), Arna Kristjánsdóttir.
Sókn: Guðrún Anna Atladóttir, Guðrún Hermannsdóttir, Diljá Helgadóttir (Elísabeth Ásgeirsdóttir 46.)
* Hrönn, sem leikur með 3. flokki Víkings, spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik.
* Guðrún Anna er nýkomin aftur í HK/Víking eftir að hafa leikið með KR og Fylki og spilaði sinn fyrsta leik eftir skiptin.
Sjá nánar:
"Þetta
er mjög erfitt mót sem er að baki þar sem við mættum þremur af bestu
liðum landsins. Næsta verkefni er deildabikarinn þar sem við munum eiga
í höggi við væntanlega andstæðinga okkar í sumar og við búum okkur vel
undir það á næstu vikum," sagði Sigurður Víðisson þjálfari HK/Víkings.
*
Þetta var lokaleikur HK/Víkings í mótinu og þar með tekur við hlé frá
mótsleikjum þar til deildabikarinn hefst í lok mars. Þá verða spilaðir
fimm leikir framí maíbyrjun.
*
Heiður lék sinn 25. leik í Reykjavíkurmótinu og aðeins Ellen
Bjarnadóttir hefur spilað fleiri leiki í mótinu fyrir HK/Víking, 30
talsins.
* Þetta var sjöundi mótsleikur HK/Víkings og Vals frá upphafi og hefur Valur haft betur í öll skiptin. Sjá nánar: Mótherjar.
Mynd: Sigurður Víðisson er þjálfari HK/Víkings.
Frétt af heimasíðu HK