Árgangamóti Víkings
10.2.2010
Árgangamóti Víkings
Laugardaginn 23 janúar síðastliðinn var árgangamót Víkings haldið með pomp og prakt í Víkinni.
Um 80 kappar voru mættir til leiks og voru þeir úr 17 árgöngum. Spilað var á tveimur völlum þvert á Víkina en þannig náðist að spila allt mótið á inna við 4 tímum.
Riðlarnir voru þrír. Sigurvegarar í fyrsta riðli var 63 árgangurinn, sigurvegar í öðrum riðli var 67 árgangurinn en tvö lið voru jöfn í þriðja riðli 79 árgangurinn og 82 árgangurinn. Undanúrslitaleikirnir voru því á milli 63 árgangsins og 67 árgangsins annars vegar og 79 árgangsins og 82 árgangsins hinsvegar. 63 árgangurinn vann öruggan sigur í sínum leik og 82 árgangurinn landaði sigri gegn 79 árgangnum.
Til úrslita léku því 63 árgangurinn og 82 árgangurinn og nú var spilað á stórum velli. Mikið var talað um að þarna myndu ungir mæta gömlum en 63 árgangurinn gerði sér lítið fyrir og sigraði úrslitaleikinn og þar með mótið. Sigurliðið vildi meina að þarna hafi karlmenn mætt drengjum og skutu þar með á allar raddir sem höfðu rætt um unga á móti gömlum.
Það er síðan ekki hægt annað en að nefna skelegga frammistöðu skipuleggjanda mótsins en það voru þeir, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Björn Bjartmarz, Halldór Sæmundsson og Sigurður Sighvatsson.
Myndir frá mótinu eru hér Árgangamót janúar 2010