lesa meira

HK/Víkingur mætir ÍR í bikarnum

24.2.2010

Í morgun var dregið til fyrstu umferðanna í bikarkeppni KSÍ í meistaraflokki kvenna. HK/Víkingur situr hjá í 1. umferðinni en mætir ÍR á útivelli í 2. umferðinni og er spilað laugardaginn 5. júní.

ÍR-ingar leika eins og HK/Víkingur í 1. deild í sumar eftir að hafa fallið úr úrvalsdeildinni í fyrra. Sigurliðið í leiknum fer í 16-liða úrslit keppninnar en þar mæta lið úrvalsdeildar til leiks.

Niðurröðun bikarkeppninnar 2010.

Mynd: Hildigunnur Sól Eldjárn í leik með meistaraflokki HK/Víkings síðasta sumar.

Heimild HK.is