lesa meira

Unglingadómaranámskeið í knattspyrnu hjá Víkingi.

3.3.2010
Unglingadómaranámskeið hjá Víkingi í Víkinni. Verður haldið mánudaginn 7. mars kl. 19:00 í Víkinni. Um að ræða tveggja og hálfs  tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál. Sá sem lýkur þessu námskeiði öðlast réttindi til þess að dæma í 4. flokki og neðar og getur einnig verið aðstoðardómari í 2. flokki. Námskeiðið er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri. Námskeiðið er ókeypis.