Knattspyrnudeild Víkings semur við Puma.
9.3.2010
Víkingur spilar í Puma
Knattspyrnudeild Víkings og Tótem, umboðsaðili Puma á Íslandi, hafa skrifað undir 4ra ára samning um að knattspynulið Víkings leiki í búningum frá Puma.
Puma er eitt af leiðandi vörumerkjum í íþróttabúnaði í heiminum og því er það fagnaðarefni fyrir Víking að samningar hafi náðst.
Á sunnudagskvöldið 7.mars spilaði meistaraflokkslið Víkings í fyrsta sinn í Puma búningum eftir að samningar voru undirritaðir og var leikurinn úrslitaleikur í Reykjavíkurmótinu við KR.
Mikið vöruúrval er í boði í Víkingslínunni frá Puma og munu iðkendur í yngri flokkum fá með sér vörubækling heim á næstu dögum, bæklingurinn mun einnig verða aðgengilegur á heimasíðu Víkings.
Einnig verður opið hús í Víkinni þriðjudaginn 16.mars og miðvikudaginn 17.mars frá kl. 1700 til 2000 þar sem hægt er að koma og máta vörur úr Víkingslínunni frá Puma og panta.