lesa meira

Yfir 1.000 iðkendur á KFC-mót Víkings 2010!

1.5.2010
KFC-mót Víkings, fyrir stráka og stelpur í 7. flokki, er umfangsmeira og fjölmennara í ár en nokkru sinni  fyrr. Liðlega 1.000 iðkendur eru skráðir til leiks, þar af yfir 600 strákar á sjálfum baráttudegi verkalýðsins og um 400 stelpur á morgun, sunnudaginn 2. maí.

Leikið verður á fjórum völlum á nýja gervigrasinu frá morgni til kvölds. Þegar hvert lið hefur lokið leikjum sínum fær það afhentan veglegan verðlaunapening fyrir þátttökuna og mótshaldarar smella mynd af liðunum til birtingar í myndasafni KFC móta Víkings. Síðast en ekki síst ber svo að nefna veislumáltíðina, lokaliðinn á dagskrá krakkanna:  kjúkling og franskar kartöflur í boði og gos í boðiPepsí Kóla. Stærstu kjúklingaframleiðendur á Íslandi styðja líka vel við mótshaldið: Ísfugl, Móar og Reykjagarður. 

Þetta er því engin venjuleg samkoma í neinum skilningi, heldur fyrsta stórmót knattspyrnumanna á lífsleiðinni, gleðistund fyrir foreldra og alveg sérstakur ánægjudagur fyrir gestgjafana í Víkinni!

Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar Víkings, með hinn sívirka máttarstólpa Kjartan Hjaltested, annast framkvæmd mótsins, KFC er gestgjafi í matsal í tengibyggingunni, með Ingunni Helgadóttur – Systu og Atla Einarsson í fremstu víglínu. Þá ber að nefna að 6. flokkur stráka og stelpna í fótbolta annast aðra veitingasölu (kaffi, brauð, gos, sælgæti) í veitingasalnum í Víkinni og í veitingatjaldi við grasvöllinn.

Víkingar efndu fyrst til móts fyrir fótboltakrakka í 7. flokki árið 1999, þá í samstarfi við pizzufyrirtækið Dómínós. KFC tók við kyndlinum 2003 og hefur staðið að mótinu með Víkingum síðan þá, reyndar á svæði Þróttar í Laugardal 2008 og 2009, þegar unnið var að framkvæmdum við grasvöllinn á Víkingssvæðinu. Þökk sé vinum vorum hjá Þrótti fyrir gestrisni og samstarfið undanfarin tvö ár.

Nú er KFC-mótið hins vegar komið á ný heim í heiðardal Fossvogsins og glæsilegur gervigrasvöllur Víkings er í fyrsta sinn vettvangur þess.
Liðum á mótinu fjölgar ár frá ári og gleðilegt er að sjá hve stúlknaliðunum hefur fjölgað mikið, enda leggja mótshaldarar sig eftir því að fá stelpnalið til að mæta og hlú þannig að kvennaknattspyrnunni á Íslandi.

Fjöldi sjálfboðaliða úr ungmennastarfi knattspyrnudeildar Víkings ganga vaktir og KFC er með tvo tugi starfsmanna í hörkuvinnu á meðan mótið stendur yfir við matseld í Skeifunni, akstur með matinn á mótsstað og framreiðslu í „borðsalnum“. 

  • Rétt er að geta þess að foreldrar og aðrir gestir á mótinu geta keypt kjúklingamáltíð  en maturinn er annars innifalinn í mótsgjaldi iðkenda.

Iðkendur og gestir á KFC-móti Víkings 2010: Verið hjartanlega velkomnir og skemmtið ykkur vel í Víkinni!