Þakklátir gestir, ánægðir aðstandendur KFC-móts Víkings
3.5.2010

Ætla má að um í það minnsta 2.000 manns hafi komið í Víkina um nýliðna
helgi vegna KFC-móts Víkings: iðkendur, foreldrar og þjálfarar af
höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og frá Selfossi.. Mótið var hið stærsta
frá upphafi og tókst með ágætum.
Fullbókað var á laugardaginn og reyndar komust mun færri strákalið að en vildu. Spilað var linnulaust á fjórum völlum frá klukkan 8 að morgni til 18 að kveldi og auðveldlega hefði verið að halda áfram fram í svartamyrkur ef öll lið hefðu verið skráð sem áhuga höfðu á að mæta!
Stúlknalið voru í fyrsta sinn á mótinu 2009 og þeim fjölgaði mjög í ár. Stúlknaleikirnir voru frá kl. 9:00 til 15:00 í gær, sunnudag. Þessi hluti mótsins er því tvímælalaus vaxtarbroddur samkomuhaldsins. Aðstandur mótsins af hálfu KFC og Víkings eru sérlega ánægðir með að hlú þannig að kvennaknattspyrnunni og hvetja ungar fótboltastelpur til dáða.

Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar Víkings og KFC stóðu að mótinu og auðvitað skapar þáttur KFC umgjörðina sem gerir samkomua alveg einstaka og eftirsóknarverða eftir því. KFC sér mótinu fyrir verðlaunapeningum og sv o að sjálfsögðu kjúklingum og frönskum í lokin., með góðum stuðningi stærstu kjúklingaframleiðenda landsins, Ísfugls, Móa og Reykjagarðs. Pepsí Kóla leggur til drykki til að skola niður góðgætinu. KFC-fólk segir að 1.300-1.500 kjúklingabitar hafi lent á diskum gesta í Víkinni um helgina, flestir auðvitað hjá iðkendum en forráðamenn þeirra gátu líka keypt sér góða máltíð fyrir lítið.
6. flokkur stráka og stelpna í fótboltanum hjá Víkingi annaðist aðra veitingasölu á mótssvæðinu. Ótal sjálfboðaliðar komu að mótshaldinu frá KFC og Víkingi. Gera má ráð fyrirað um 100 manns hafi komið að málinu á einn eða annan hátt um helgina við framkvæmdastjórn, dómgæslu, umferðarstjórn, veitingarekstur og annað tilheyrandi. Sumir stóðu jafnvel vaktina frá upphafi til enda, þ.e. frá undirbúningi á föstudag til frágangs á sunnudagskvöld.
- Á nýrri myndasíðu KFC á Vefnum eru nær 500 myndir frá KFC-mótinu 2010. Þar er reyndar að finna líka á annað þúsund myndir til viðbótar frá fyrri mótum KFC-mótum Víkings allt frá þeim var ýtt úr vör árið 2003! Þarna er því saga KFC-móta Víkings skráð.