Sumarskóli Víkings skráning hafin!
4.5.2010
Knattspyrnuskóli Víkings
Knattspyrnuskóli Víkings er fyrir krakka á aldrinum 5-13. Námskeiðin eru ýmist kl. 9-12 eða kl. 9-16. Boðið er upp á gæslu frá kl. 8-9 og frá 16-17 og er það innifalið í gjaldinu.
Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig. Eftir hádegi verður farið í hjólaferðir,ratleiki og margt fleira.
Kennarar við skólann eru íþróttakennarar að mennt og/eða reyndir og sérmenntaðir í sinni íþrótt.
Námskeið 1. 14.júní – 25. júní /Tvær vikur
Námskeið 2. 28.júní – 9. júlí /Tvær vikur
Námskeið 3. 12.júlí– 23. júlí /Tvær vikur
Námskeið 4. 9. ágúst–13. ágúst /Ein vika
Verð: (miðast við tveggja vikna námskeið)
Heill dagur - 14.000 kr.
Hálfur dagur - 8.000 kr.
Heill dagur með knattspyrnuæfingum - 11.000 kr.
Veittur verður 20% systkinaafsláttur.
Vikunámskeiðin eru helmingi ódýrari.
Krakkarnir verða að koma með nesti í skólann og það er einn kaffitími fyrir og eftir hádegi og svo hádegishlé. Muna að klæða börnin eftir veðri.Ef veður er vont þá fara yngstu krakkarnir inn í íþróttasal.
Fylla þarf út skráningarblað hér að neðan og senda á oliola@vikingur.is
Síðan þarf að millifæra þátttökugjaldið inná reikning 0130-05-7995, kt. 700269-0789 áður en námskeið hefst. Einnig er hægt að greiða með kreditkorti
Í skýringu á millifærslu þarf að koma fram nafn og kennitala þátttakanda og senda síðan kvittun á oliola@vikingur.is