lesa meira

4. flokkur kvenna tvöfaldir Reykjavíkurmeistarar

7.5.2010

4 flokkur kvenna er  Reikjarvíkurmeistarar 2010 í A og B liðum.   Þessi árangur bætist við  Íslandsmeistara titil  innanhúss hjá þessum stelpum og þær unnu fyrr í vetur.  Það hefur verið góður stígandi í spilamennsku stelpnanna  nú á vormánuðum og eru þær hér að uppskera frá góðri  æfingasókn í vetur.  Í Reykjavíkurmótinu  tapaðist bara einn leikur  og var það fyrsti leikurinn hjá  a liðinu síðan var ekkert horft til baka.  Nú styttist í að Íslandsmótið hefjist og verður ekkert gefið eftir þar,  frekar en á Gothiacup mótinu sem haldið er  árlega í Svíþjóð  og stelpurnar munu sækja seinnipart júlí.    “ Til hamingju  Víkingur.”