A-lið 4. flokks karla Reykjavíkurmeistari
8.5.2010
Strákarnir í A-liði 4. flokks tryggðu sér Reykjavíkurmeistaratitill með stórsigri á Val í Víkinni í gær, fimm mörkum gegn einu í næstsíðustu umferð mótsins. Þeir mættu svo Fylki í lokaumferðinni í dag, laugardag, og sigruðu örugglega með þremur mörkum gegn einu.
Víkingar enduðu því mótið með 25 stig af 27 mögulegum, sigruðu í átta leikjum en gerðu eitt jafntefli. Helsti keppinautur um meistaratitilinn var Fram. Víkingar lögðu grunninn að sigri í mótinu með því að leggja Framara í Sogamýrinni fyrr í þessari viku, 0-1, í jöfnum, erfiðum og afar skemmtilegum leik. Þar spiluðu Víkingar eins og sannir meistarar og spiluðu besta snn leik sinn á mótinu.
Reykjavíkurmeistaratitillinn er stór rós í hnappagat Milosar Milojevic, þjálfara 4. flokks. Hann tók við þjálfuninni í fyrra, hefur kennt strákunum margt í fótbolta og ekki síður breytt hugarfari þeirra. Milos er einn menntaðasti þjálfari Víkings, mjög agaður, kröfuharður fyrir hönd strákanna og óþreytandi að minna þá á að eina leiðin til að ná árangri sé að leggja hart að sér. Það hefur líka komið á daginn. Og nú gefst strákunum í 4. flokki og öðrum Víkingum tækifæri í sumar til þess að sjá hvað Milos sjálfur getur á knattspyrnuvellinum því hann er er orðinn liðsmaður meistaraflokks félagsins!
- 4. flokkur Víkings er mjög sterkur, sem sést best á því að hann hefur fært félaginu sínu þrjá Reykjavíkurmeistaratitla í ár, A- og B-lið stúlkna höfðu áður tryggt sér þennan titil og nú A-lið karla!
Til hamingju Víkingar!
