lesa meira

Víkingur-Fjarðabyggð í kvöld kl. 19 - staðfest

10.5.2010
Nú liggur ljóst fyrir að leikur Víkings og Fjarðabyggðar verður leikinn í kvöld kl. 19:00. Liðsmenn Fjarðabyggðar stíga um borð í vél Flugfélags Íslands á Egilsstöðum kl. 11:30 og lenda í Reykjavík um klukkustund síðar.
Það er okkur Víkingum gríðarlega mikilvægt að fjölmenni verði á leiknum í kvöld. Mikil vinna hefur verið lögð í starfið í undanfara mótsins og heimavöllur okkar í Víkinni er sá glæsilegasti á landinu en þar hefur fjöldi sjálfboðaliða lagt hönd á plóginn.
Árskort verða seld við innganginn og er verðið kr. 10.000,- og kr. 18.000,- fyrir hjónakort. Meðlimir í Víkingasveitinni geta nálgast árskort sitt í Víkinni í dag eða við innganginn í kvöld.

Áfram Víkingur!