Sigur í fyrsta leik
11.5.2010
Víkingar sigruðu Fjarðabyggð 2:1 í fyrsta leik Íslandsmótsins í Víkinni í
gærkvöldi. Það var Dofri Snorrason sem skoraði mörk Víkinga á 18. og
20. mín og kom þeim í 2:0. Fyrri hálfleikur einkenndist af yfirburðum
Víkinga en í þeim síðari jafnaðist leikurinn þó svo að yfirhöndin væri
ávallt Víkinga. Sjálfsmark Egils Atlasonar á 86. mín skapaði óvænta
spennu á lokamínútunum.
Nánari umfjöllun má finna á vef stuðningsmanna -
http://www.vikingur.net/
Næsti leikur liðsins er gegn Fjölni föstudaginn 14. maí og verður leikið
í Grafarvogi.